Fjölrit RALA - 10.06.1985, Side 8
4
1. REYNSLAN AF LOÐDÝRARÆKTINNI TIL ÞESSA (S.J.B.)
1.1 Minkur
Innflutningur minka hófst haustið 1969, í kjölfar þess
að lög um loðdýrarækt, nr. 68, 28. maí 1969 voru samþykkt
frá Alþingi.
Alls hafa verið fluttar inn 13.600 minkalæður og
skiptist innflutningurinn svo á milli ára:
Ar Fj. innfl. læða
1970 3200
1971 4400
1975 2600
1976 1200
1980 250 laus vió plasmacytosis
1983 1950 veikina.
Arósemi var lengi vel lítil af minkabúum. Erfióastur
viðureignar var sjúkdómurinn plasmacytosis, sem tekið hefur
mikinn toll af dýrum og valdió mikilli ófrjósemi.
Tafla 1.1 sýnir m.a. fjölda fullorðinna dýra á hverju
hausti síóan minkarækt hófst á ný, auk fjölda hvolpa, sem á
legg kómst eftir hverja fengna læðu.
Eins og sjá má, horfði til^vandræða árin 1971-1973 aó
þessu leyti. Síðan batnaði ástandió, m.a. vegna verulegs
niðurskurðar á sýktum búum haustið 1973. Frjósemin jókst
síðan mjög hægt fram til ársins 1981, að niðurskurði var
beitt árlega allt til ársins 1984, ásamt innflutningi minka
af heilbrigðum stofni. Tók þá frjósemi miklum stakkaskiptum
og árin 1982-1984 komust að meðaltali 3.9 hvolpar á legg
eftir hverja fengna læðu, sem er 38% betra hlutfall en verið
hafói meðaltal næstu 11 ára á undan.
NÚ i ár, 1985, viróist hlutfallió ætla að verða enn
betra, eða u.þ.b. 4.5 hvolpar eftir hverja fengna læóu. Er
þetta mest að þakka árangri í baráttunni gegn plasmacytosis,
en nú er ekki vitaó um neitt sýkt bú i landinu. Auk þess
virðast loðdýrabændur vera að ná góðum tökum á meðferð
dýranna.
1.2 Refur
Innflutningur blárefa hófst haustið 1979, en einnig
voru fluttir inn blárefir haustin 1980 og 1983. öhætt er aó
segja, að reksturinn hafi gengið mjög vel og hafa vanhöld af
völdum sjúkdóma verið i lágmarki.
Mikil aukning lifdýra hefur átt sér stað á þessum árum,