Fjölrit RALA - 10.06.1985, Blaðsíða 11
7
2. ÁÆTLUN UM ÞRÖUN LOÐDÝRARffiKTAR NÆSTU 5 fiRIN (J.R.B.,
S.J.B., K.A.H.)
2.1 Inngangur
1 febrúar 1985 var unnin áætlun um þróun loðdýraræktar
í landinu aö beiðni þingmannanefndar, sem vann aö
endurskoóun á Framleiösluráðslögum. 1 þeirri áætlun er gert
ráö fyrir, að loðdýraræktin verði efld í þeim mæli, að hún
geti skapaó 1000 ný störf á næstu árum. Slík uppbygging
kostar mjög mikla fjárfestingu eða 4,3 milljarða króna.
Jafnframt er áætlað, að loðdýraræktin muni þá geta skilað
1,6 milljöróum króna í framleiósluverðmæti á ári.
Áætlun þessi er birt í heild hér á eftir.
2.2 Greinargerð
I þessari áætlun er gert ráð fyrir 1000 ársverkum í
loðdýrarækt aó fimm árum liðnum, þ.e.a.s. hirðingu og
skinnaverkun. Auk þess eru störf við fóðurframleiðslu og
leióbeiningastörf áætluó um það bil 50. önnur
margfeldisáhrif má reikna með aó verði viðlíka og í annarri
iö ju.
Fjárfesting á "tófugildi" á loðdýrabúi er hér áætluð 30
þús. kr. Samkvæmt áætlun Byggingastofnunar landbúnaðarins og
Ketils Hannessonar (sjá bókina "Ráðunautafundur 1985" bls.
110 og 112) er stofnkostnaóur við blárefabú kr. 32.712,- á
læóu og við minkabú kr. 13.105,- á læðu. Sé miðað við að
vinna við hverja tófu jafngildi vinnu við 4 minkalæður,
verður fjárfestingarkostnaður á búi með 50% ref og 50% mink
kr. (1 x 32.712 + 4 x 13.105): 2 = 42.566,- kr. á
"tófugildi", eða um 12.566,- kr. hærri en reiknað er með í
þessari áætlun.
Ástæður þess að hér er reiknað með lægri
fjárfestingarkostnaði á læóu heldur en Byggingastofnun
landbúnaóarins gefur upp eru:
a) LÍfdýr eru hér reiknuð á skinnaverði.
b) Gert er ráð fyrir að byggingarkostnaður lækki eftir því
sem þekking eykst.
c) Gert er ráó fyrir að vegna búháttabreytinga losni
byggingar, sem nýta má til loðdýraræktar. Öljóst er, í
hve miklum mæli það getur oröió, en þess má geta, að
áætlað er aö fjárfestingakostnaður á tófu er talinn
geta lækkað x 10-12.000,- kr. ef byggingar, sem fyrir
eru, verða nýttar.
Sé reiknað með meðalkostnaði kr. 42.566,- á
"tófugildi", er fjárfesting alls um 5,3 milljarðar kr.
í stað 3,75 milljarðar kr.