Fjölrit RALA - 10.06.1985, Side 26
22
5. KYNBÆTUR OG ERFÐARANNSðKNIR (P.H.)
5.1 Inngangur
Peir blárefir, sem nú eru ræktaðir á Islandi, eiga
uppruna sinn að rekja til tveggja refabúa erlendis. Srin
1979 og 1980 voru fluttar inn samtals 470 tófur frá
Perthshire í Skotlandi og árið 1983 voru fluttar inn 200
tófur frá Noregi. (I þessari samantekt er orðið refur notað
um karldýrió og tófa um kvendýrið. önnur oró um karldýr
refsins eru steggur og högni en kvendýrið hefur verið kallaó
læóa, bleyóa og keila).
Vegna þess, hve upprunalegur stofn var litill, hefur
veriö sett á mikið af miðlungsdýrum. Telja sumir, að af þeim
sökum hafi meöalfeldgæóum hrakað. Sérstaklega hefur
brúnleitur blær á refaskinnum dregið úr verðmæti þeirra.
í Islandi eru fimm meginlitarafbrigði minka, ljóst
(perla), brúnt (pastel), svart (skanblack) og hvítt auk
arfhreins "fransks" villiminks. Æskilegt er, að afbrigðin
verói fleiri, auk þess sem stöðugt þarf að bæta feldgæði
þeirra afbrigóa sem fyrir eru.
Því er talin mikil þörf á að flytja til landsins dýr af
góðum stofni, bæói af sömu afbrigðum minka og blárefa og
fyrir eru i landinu, til kynbóta, en einnig af nýjum
afbrigóum, sem verðmæt kynnu að verða á næstu árum, auk
silfurrefa og rauðrefa.
Auk þess er bráðnauðsynlegt að loðdýraræktendur efli
mjög kynbætur meðal loðdýra sinna, en til þess aó svo megi
verða, þarf að taka í notkun tölvuskráningu allra loðdýra i
landinu.
Þá má telja eðlilegt, aö Islendingar rannsaki erfðavisa
þá, sem finnast meðal mórauðra dýra af villta, islenska
refastofninum, ef hægt yrði að framleióa ný og verðmæt
afbrigði. Einnig er rétt að taka hvit, islensk dýr til
ræktunar, til þess að auka feldgæði þeirra, en blendingar
silfurrefa og hvitra fjallrefa hafa mjög verðmæt skinn.
Sökum smithættu, bæði af innfluttu dýrunum og villtum,
islenskum ref, verður aó fara að öllu með hinni mestu gát
(sjá 6. kafla).
5.2 Rannsókna- og þróunarverkefni
5.2.1 Þróun kynbótakerfis (verkefni nr.l)
Eins og fram kom i undirkafla 5.1, hefur eiginleikum
loðdýra á islenskum búum hrakaö nokkuð á undanförnum árum,
sökum þess hve hlutfall lifdýra hefur verið hátt. Þar eð
gert er ráð fyrir áframhaldandi fjölgun loðdýrabúa i