Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 38
34
6. SJOKDðMAVARNIR OG HEILBRIGÐISEFTIRLIT (E.G.)
6.1 Sóttkví fyrir innflutning - sóttkviarbú
1 framtíðinni veróur vart hjá því komist að flytja inn
ööru hvoru bæöi minka og refi, annars vegar til kynbóta á
þeim stofnum sem fyrir eru í landinu og hins vegar til þess
að flytja inn ný litarafbrigói. Einnig má reikna með aö til
greina geti komió að flytja inn önnur loódýr til ræktunar.
Koma verður upp sóttkvíarbúi, sem eingöngu verði notað
sem sóttkví fyrir innflutt loðdýr.
öllum innflutningi fylgir nokkur áhætta og veróur því
að fara aö öllu meó gát.
6.1.1 Val á dýrum til innflutnings
Miklu máli skiptir að standa vel aö vali á dýrum til
innflutnings. Ákveða verður tímanlega hvaöan er fyrirhugað
að flytja inn dýr. Leita skal upplýsinga um
heilbrigöisástand i viðkomandi landi, landsvæói og á
einstökum búum, skoða aðstæður og krefjast þess að hvert
einstakt dýr sé skoðað sérstaklega, blóðprófað fyrir
ákveónum sjúkdómum, (refir: nosematosis, minkar:
plasmacýtosis) og dýrin meðhöndluö gegn snikjudýrum fyrir
flutning.
6.1.2 Fjöldi innfluttra dýra
Þeim mun fleiri dýr sem flutt eru inn hverju sinni,
þeim mun ótryggari og þyngri i vöfum verður forskoöun og
allt eftirlit. Takmarka skal þvi innflutning við fá dýr.
Gert er ráð fyrir, að i næstu innflutningslotu verði
fluttir inn:
(i) 10 úrvalsrefir af þeim blárefsafbrigðum, sem fyrir
eru i landinu. Af islenskum loódýrabúum yrðu fluttar 40 vel
valdar tófur af sama afbrigói til undaneldis með þeim.
(ii) 25 blárefir (5 refir, 20 tófur) af afbrigðum, sem
ekki eru fyrir i landinu, en talið er æskilegt að verði
ræktuð hérlendis.
(iii) 25 silfurrefir og rauðrefir (5 refir, 20 tófur)
en ræktun þeirra hér er á frumstigi og þvi árióandi að fá
góö dýr til ræktunar sem fyrst.
(iv) 100 hvolpafullar minkalæóur, bæði af þeim
afbrigðum, sem fyrir eru i landinu og af nýjum afbrigðum,
sem talið væri áhugavert að taka til ræktunar hér.