Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 41
37
þ.e. á Vesturlandi (Hvanneyri), á Vestfjöröum, Noróurlandi
(Hólar), Austurlandi og Suðurlandi. Nauósyn þykir bera til
aó hafa slíkt bú i hverjum landsfjóróungi og á Vestfjöróum
þar sem þau eru einnig ætluð sem sæóisstöðvar.
Einangrunar- og kynbótabú verða aó sumu leyti rekin
ööru vísi en venjuleg loódýrabú enda þarf meiri nákvæmni þar
vegna sóttvarna og ræktunar. ÞÓ má gera ráð fyrir aó þau
standi undir sér vegna mikillar sölu lífdýra og sæðis.
Eólilegast er aö S.l.L. eóa loðdýraræktarfélögin i hverjum
landsfjóröungi stofni og reki búin i samvinnu viö
bændaskólana eöa aðra opinbera aðila.
6.3 Sæóingar
Vió pörun á refabúi má búast við, að hver refur geti
gagnast 4-6 tófum að meðaltali. Þessar tölur mætti tifalda
meö sæóingum og þvi eru sæöingar mjög mikilvæg tæki við
kynbætur, þ.e.a.s. notkun úrvalsrefs til undaneldis. Auk
þess er blendingsrækt (þ.e. blárefur x silfurrefur) nær
óframkvæmanleg nema meó sæóingum.
Refasæðingar hófust ekki aó ráöi fyrr en laust fyrir
1980, fyrst i Noregi en hin siðari ár einnig á hinum
Noróurlöndunum. Hefur þróunin verið hröð og munu nú sæddar
tófur nema tugum þúsunda i hverju landi á ári.
Hérlendis var geró tilraun með sæðingar i mars 1985,
þegar dýralæknar sæddu m.a. 8 blárefatófur með sæði úr
silfurrefum. Þrjár þeirra fæddu blendingshvolpa i vor og
lofar sú byrjun góðu. .
Það sem setur sæðingartækni hvaó mest takmörk nú, er að
einungis er hægt að nota ferskt sæði og hefur það ekki nema
10 klst. liftima. Þá er það ein meginforsenda sæðinga, að
notkun brimamælis verði algengari en nú. Loks er skortur á
aðstöðu i flestum loðdýrabúum, þar eð sæðing þarf að fara
fram i upphituðu herbergi, en ekki er talið ráólegt frá
smitvarnarsjónarmiði, að loðdýrabændur flytji tófur á
sérstakar sæðingarstöóvar til sæðinga, eins og tiðkast hefur
sums staðar á Norðurlöndum.
Um sæðingar þyrfti sem fyrst að setja reglugerð, en
slikar reglugerðir voru settar i Noregi og Danmörku árið
1984 og mætti hafa nokkra hliðsjón af þeim.
Þeir einir sem tekið hafa sérstök námskeið i sæðingum
refa og fengió hafa löggildingu frá lándbúnaðarráðuneytinu
mega leggja stund á sæðingar. Ráögert er að halda námskeið
i sæðingum refa snemma á næsta ári. Æskilegast væri aó
sæóingar verði alfarið i höndum dýralækna og ráóunauta.
i