Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 49
45
Silfurrefir geta haft eftirfarandi arfgerðir:
AAbb = "Standard" silfurrefur.
aaBB = Alaska silfurrefur.
aabb = Tvöfalt víkjandi silfurrefur.
Aabb = "Sub-standard" silfurrefur.
aaBb = "Sub-Alaska" silfurrefur.
Með æxlun þessara silfurrefa sín á milli og með
rauðrefum fást eftirtalin afbrigði:
AaBB = Krossrefur.
AaBb = Blandaður krossrefur.
AABb = Bastaróur.
Krossrefurinn er meó skýra svarta eða dökkbrúna mön
eftir hryggnum og svipaða rák yfir herðarnar, niður á bóga
og af þessu dregur hann nafnið. Á skrokknum er hann oftast
rauður með dökku og silfruðu ívafi.
Blandaður krossrefur er svipaður, en dekkri.
Bastarðurinn er ljósastur, en yfirleitt jafnrauður um
allan skrokkinn. Sumir bastarðar undan "Standard" silfurref
og evrópskum rauðref, geta veriö dökkrauðir með svartan
kvið. Slík skinn eru seld undir nafninu "Gold fox" (6).
Fjöldi stökkbreytinga hefur komið fram við ræktun.
Nefnd, skipuð af loðdýradeild Sambands norrænna
búvisindamanna árið 1978, samdi núgildandi erfðatáknastaðal,
sem sýndur er í töflu 7.4.
Nánar er fjallað um literfðir i bláref og silfurref i
óprentaðri ritgeró eftir Álfheiði B. Marinósdóttur (29).
7.3 Minkar (Mustela vison).
7.3.1 Uppruni ræktaðra dýra.
Minkurinn er upprunninn i N-Ameriku og nær útbreiðsla
hans þar frá Texas i suðri og norður fyrir trjálinu.
Minkaskinn höfðu lengi verið eftirsótt grávara, þegar tekið
var að rækta þá, en það mun hafa verið i Kanada i kringum
1870 (4).
Minkar voru fyrst fluttir til Noregs árið 1927 (4) og
þaðan til Islands árið 1931 (17) . Fyrstu dýrin voru af
svonefndu Missisippi kyni og er islenski villiminkurinn
fyrst og fremst kominn út af þeim stofni (18) . Sióar var
fjöldi annarra afbrigða fluttur til landsins, meðal annars
beint frá Kanada og Bandarikjunum (19).
Þess má geta, að margar aörar Evrópuþjóðir fluttu
einnig inn minka á þessum tima og eru nú i flestum þessara