Fjölrit RALA - 10.06.1985, Side 52
48
8. VIÐAUKI II. Hugleiðingar um timgun melrakkans í haldi
(P-H.)
8.1 Eólisfar.
Islenskir, villtir refir eru ekki eins frjósamir og
blárefir' eru við bestu aðstæóur. Meðalfjöldi yrðlinga við
getnað er u.þ.b. 5-6 og mjög sjaldgæft er, aó þeir séu
fleiri en 8. Búast má við, að frjósemi verói minni hjá
sumum þeirra dýra, sem tekin veröa sem yrðlingar í
náttúrunni.
Islenskir refir eru einkvænisdýr að mestu, en dæmi eru
um, að tvær læður með misgamla yrðlinga finnist á sama
greni, ásamt einum stegg.
Islenskir refir eru minni en innfluttir blárefir, en
allmiklu stærri en frændur þeirra á túndrum N-Ameríku og
Evrasíu. Þó er áramunur á stæró íslenskra refa og fylgir sá
munur sveiflum í rjúpunni á NA-landi, en rjúpan er þeirra
aðalfæða þar á haustin og veturna. Því er hugsanlegt, að
rétt fóðrun geti minnkað þennan stærðarmun á íslenskum refum
og blárefum.
8.2 Timgun.
Fyrir 50 árum, eða svo, þegar Islendingar gerðu
tilraunir með ræktun fjallrefa, reyndist þeim oft erfitt að
fá þá til að tímgast í haldi. Þá var algengt, aó yrölingar
úr einum eða fleiri systkinahópum væru hafðir saman í stórum
búrum fram undir fengitíma, en þeim síðan skipt í pör í
minni búrum. Má vera, að þessi aðferð hafi verið ástæðan
fyrir því, að dýrin tímguðust ekki, nefnilega að þau æxlist
síður með systkinum (eóa fóstursystkinum), enda er slíkt
sennilega mjög fátitt i náttúrunni, a.m.k. þar sem val er á
öðrum mökum.
Parmyndun islenskra refa á fyrsta ári getur gerst strax
i janúar, þótt fengitiminn sé ekki fyrr en i mars-april.
Þetta getur bent til þess, aö dýr, sem ætlunin sé aö láta
æxlast saman, þurfi langan aölögunartima hvert að öðru.
íslenskir fjallrefir timgast strax á fyrsta ári og
viróist litill munur vera á fyrsta árs og eldri læðum, hvað
varðar hlutfall geldra dýra, þegar nóg er af æti og
stofninum er haldið undir hámarksstærð. Algengara er, að
steggir á fyrsta ári timgist ekki, en það stafar sennilega
frekar af þvi, aö þeir hafi verið of seinir að helga sér
óðöl, en að æxlunarfæri þeirra hafi ekki verið nægilega
þroskuð.