Fjölrit RALA - 10.06.1985, Síða 66
62
14. VIÐAUKI VII. Leiðbeiningar um flutning og notkun á
sláturafurðum og sláturúrganqi í loðdýrafoður (E.gT)
Ástæóa er til að hvetja menn til varkárni í meóferð,
dreifingu og notkun á sláturúrgangi vegna hættu á
smitsjúkdómum svo sem rióuveiki, sullaveiki og ýmsum veiru-
og bakteríusjúkdómum sem lagst geta á loðdýr, aðrar
búfjártegundir og fólk.
1. Þegar sláturafuröir eru notaóar til loðdýrafóðurs má
eingöngu nota afurðir af dýrum sem reynst hafa
heilbrigð vió slátrun aó dómi viðkomandi
kjötskoðunarlæknis.
2. Lxffæri og blóð úr heilbrigðum nautgripum og hrossum má
taka í fóðurgerð vió öll sláturhús landsins, enda sé
aðstaóa fullnægjandi. Or sauðfé má safna líffærum og
blóði til fóðurgerðar í sláturhúsum sem eru utan
rióusvæðanna. Söfnun þessara afurða má hvergi hefjast
fyrr en upplýsingar liggja fyrir um útbreiðslu
riðuveiki á slátursvæðinu og viðkomandi dýralæknir
hefur samþykkt söfnunaraðstööuna.
3. Héraðsdýralæknir getur leyft að safnaó sé hráæti í
loðdýrafóður frá sláturhúsum á riðusvæðum, enda sé þess
gætt aö aldrei sé safnaö frá riðubæjum eöa grunsamlegum
bæjum. Héraðsdýralæknir getur takmarkað söfnun líffæra
eftir því hvert á að dreifa fóðrinu.
4. Hráæti frá slátrun alifugla og svína má ekki nota
ósoðið í loðdýrafóður.
5. Við alla meðferð á sláturafurðum, sláturúrgangi og
fóðri sem blandaö er slíku hráæti skal gæta þess aö
öðrum dýrategundum stafi ekki hætta af. Það á við um
flutning þess, flutningstæki, fóðurilát, geymslu og
meðferó fóðursins, fóðurleifar og saur loðdýra sem
fengió hafa slíkt fóóur. Hlíta skal fyrirmælum
héraósdýralæknis um meðferð á úrgangi og saur frá
loódýrabúum. Vió hiróingu á loðdýrum ber að nota
sérstök hlífðarföt sem geymd eru i loðdýrahúsinu og
nota þau ekki vió hirðingu á öðrum húsdýrum.
6. Þeir sem framleiða loðdýrafóður til sölu skulu fá
samþykki viðkomandi héraósdýralæknis fyrir aðstöðu
sinni til þess áóur en dreifing fóóurs hefst. I
aóstöóunni felst m.a. heitt og kalt vatn, fullnægjandi
aó gæðum og magni, fullnægjandi frárennsli,
hreinlætisaðstaóa fyrir starfsfólk, kæli- og frysti-
aóstaða og nægjanlegar geymslur fyrir hráefni og fóður,
auk flutningsbúnaðar og útbúnaðar til þvotta og sótt-
hreinsunar á áhöldum, búnaði og húsnæöi.