Fjölrit RALA - 15.04.1996, Blaðsíða 27

Fjölrit RALA - 15.04.1996, Blaðsíða 27
17 Túnrækt 1995 Hinn 12.10 voru blöðin á bekkmanníu orðin rauðbláleit, og skriðliðagrasið var einnig með haustlit og lítið sprottið. Háliðagras var meira sprottið, Seida áberandi minnst, Lipex e.t.v. aðeins meira en 4042, en munurinn var óverulegur. Prófun stofna á markaði. Hafnar voru tilraunir með samanburð stofna á markaði. Skrifað var til þeirra aðila sem kunnugt var um að gætu átt stofna til prófunar. Boðið var upp á prófun á stofnum af ensku rýgresi, hávingli, háliðagrasi og hvítsmára til túnræktar, og stofnum af hvaða tegund sem er til sáningar í grasflatir. Töluvert framboð var af stofnum, nema af háliðagrasi. Þó var það einnig tekið til prófunar, en í færri tilraunum og án gjaldtöku. Enn fremur var auglýst eftir stofnum til sáningar í vegkanta, en án þess að krefjast gjalds fyrir (verkefni nr. 132-9309). Sáning í tilraunir með samanburð á stofnum til túnræktar. Sáð var til tilrauna með samanburð stofna af ensku rýgresi, hávingli og hvítsmára á tveimur stöðum, Korpu og Sámsstöðum. Sáð verður tveimur nýjum tilraunum í hverjum samanburði 1996. í hverri tilraun eru 1 eða 2 stofnar sem voru valdir til samanburðar og því ekki tekið gjald fyrir. Þremur stofnum af háliðagrasi og þeim tveim tegundum af grösum frá Magadan, sem best höfðu reynst í tilraun nr. 736-94, var auk þess sáð í samanburðartilraun á Korpu. Sáð var með sáðvél. Áburði var dreift um leið, um 670 kg/ha. Á Sámsstöðum og á grassáningar á Korpu var notaður Græðir 5, 100 kg N/ha, og á smárasáningar á Korpu Græðir 1A, 80 kg N/ha. Niðurstöður úr smáratilraunum eru á bls. 41 í kaflanum um smára. í öllum stofnatilraununum eru 3 samreitir. Sámsstöðum Sáð var 6. júní í nýunnið land á bökkum Þverár. Austan við tilraunirnar er rauðsmárasáning. Hluti af tilraunalandinu hafði verið unninn áður. Gróðri var eytt með örgresislyfi og plægt að miðju. Þar varð til hryggur. Sáð var þvert á hrygginn. Við skoðun kom í ljós, að sáðvélin hafði farið á loft á hryggnum og ódrýgðist við það syðri reitaröðin um nálægt 1 m, þó ekki í hvítsmáratilrauninni, en þar eru þó reitirnir nokkuð ójafnir. Sennilega hefur spírað illa vegna þurrks. Enn fremur kom upp á hryggnum nokkuð af innlendum gróðri, grasi og elftingu, ekki hafði tekist til fulls að eyða honum. Illgresi var að öðru leyti aðallega hjartaarfi í þeim hluta stykkisins sem hafði verið unninn áður, og var það orðið nokkuð mikið þegar slegið var. Reitastærð var um l,7x6,5m. Tilraunirnar voru skoðaðar þrisvar. Hinn 13.7. var illgresi metið í grastilraununum og hve vel hafði komið upp. Hinn 30.8. voru tilraunirnar orðnar töluvert sprottnar og þær voru slegnar og rakað út af og þekja illgresis og smára metin í smáratilrauninni. Hinn 15.9. voru nokkrar athuganir skráðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.