Fjölrit RALA - 15.04.1996, Qupperneq 28
Túnrækt 1995
18
Korpu
Tilraunirnar eru austur við girðingu á landi sem hefur verið með ýmsum grasstofnatilraunum
undanfarin ár. Landið var plægt í vor og eyðing grass með örgresisefni tókst svo vel, að ekki
verður á betra kosið. Eina illgresið, sem nokkuð kvað að, er hjartaarfi. Tilraunir nr. 745-95,
746-95, nokkrir reitir með Magadangrösum, og sáning á hvítsmára í blöndu með vallarfox-
grasi og vallarsveifgrasi eru á sama stykkinu og stofnasamanburður innan grastegunda.
Smáratilraunin er á öðru stykki vestan við, norðan brautar.
Reitastærð var um 1,4x8 m.
Sáð í stofnaprófunina 20.-21.6., nema háliðagrasi og Magadangrösum (743-95) var sáð 7.7.,
og þá var sáð utan með og valtað. Sáning tókst að öllu leyti mjög vel, nema gallar eru í tveim
rýgresisreitum og sáðmagn er aðeins minna en ætlað var í einum. Jafnt og vel kom upp.
Hinn 5.9. var slegið og rakað út af. Spretta var lítil, og það var einkum hjartaarfi sem var
sleginn, en hann slóst illa. Þó var nokkur spretta á hávöxnu grastegundunum.
Nokkrar athuganir voru skráðar, og einkunnir voru gefnar í grasstofnatilraununum 5.9. og
12.10.
Tilraun nr. 740-95. Samanburður á stofnum af ensku rýgresi, Korpu og Sámsstöðum.
Sáðmagn var um 22 kg/ha af tvílitna rýgresi (2n) og 31 kg/ha af Qórlitna (4n) og
vingulsblendningnum (Prior). Sáðmagn af Raigt5 var aukið í 35 kg/ha vegna minni spírunar.
Einkunn fyrir vaxtalag er l=upprétt, 4=næst láréttu; endurvöxt 1 minnst, 4 mest; þekju
0=ógróið, 10=alþakið.
1. Svea SW 2n Endurv. 2,3 Þekja 8,0 Vaxtarlag 2,7
2. Raigt5 Pla. 4n 1,7 7,0 3,0
3. Baristra Bar. 4n 2,0 7,0 2,7
4. AberMara Aber. 2n 3,3 7,3 1,0
5. Prior Aber. Festuca x Lolium 2,3 6,3 2,0
6. FuRa 9001 Pla. 4n 2,3 6,7 2,0
7. Tetramax DP 4n 2,7 7,0 2,0
8. Napoleon DP 4n 2,3 7,0 2,7
9. Roy Rijk. 4n 1,7 6,7 2,3
10. Liprinta Lip. 2n 3,3 8,3 1,3
11. Lilora Lip. 2n 3,0 8,3 1,3
Staðalskekkja mismunarins P-gildi 0,41 0,004 0,33 <0,001 0,42 0,001
Á Sámsstöðum var endurvöxtur mestur í Prior, en minnstur í Raigt5.
Svea og Raigt5 eru viðmiðunarstofnar.