Fjölrit RALA - 15.04.1996, Síða 32
Túnrækt 1995
22
Reitir til samanburðar áfrœi með og án Waterworks.
Þórhallur Sigurjónsson kom með fræ af tveimur stofnum sem hafði verið húðað með
Waterworks. Það er rakadrægt efni og mun hugmyndin vera, að það eigi að tryggja nægan
raka til spírunar. Fræið er vætt í jurtaolíu til að binda efnið. A 100 g af Cindy túnvingli voru
notuð 6 g af sojaolíu og 8 g af Ww-dufti, en á 100 g af Julia vallarsveifgrasi 4 g af dufti og
sama magn of olíu. Sáningu var frestað vegna vökvunar reita og votviðra, en þeim linnti ekki
og 18.8. var sáð í 9 reiti við suðurjaðar flatargrasatilraunarinnar á Korpu, 2 reitum af hverju,
þ.e. tveir stofnar með og án Ww, og einn aukareitur var af Julia án Ww. Skilyrði voru tæpast
til að kostir aukinnar rakadrægni fengju að njóta sín.
5.9. Óhúðað Cindy er komið upp, um 2 sm.
8.9. Húðað Cindy er einnig spírað, en minna. Julia er einnig farin að spíra, um 1 sm, líklega
mest á reitum með óhúðuðu fræi.
í framhaldi af þessu var fræið sent til spírunarprófunar. Helstu niðurstöður eru, að húðaða
fræið spíraði hægar, eftir 12 daga var töluverður munur á spírun, en munurinn hafði minnkað
eftir 19 daga og var nær horfinn eftir 27 daga.