Fjölrit RALA - 15.09.2001, Blaðsíða 28
Jarðvegur 2000
20
Niturlosun í jarðvegi og áburðarleiðbeiningar. Einfalt líkan af niturupptöku úr jarðvegi og
áburði.
Frumdrög að líkani af niturupptöku verða unnin úr tveimur tilraunum með N-áburð í
byggræktun sem gerðar voru sumarið 2000 á Korpu. Jarðvegsýni voru tekin af
tilraunalandinu sama dag og sáð var, 18. april 2000. Sýnin voru tekin úr 0-30, 30-60 og 60-90
sm dýpt. Ólíffænt N (Nmin) var mælt í sýnunum og rúmþyngd jarðvegs mæld.
Uppskerumælingar liggja fyrir og mælingar á N í komi og hálmi. Niðurstöðumar verða nýttar
með niðurstöðum tilrauna sem ráðgerðar em árið 2001 sem hluti af komræktartilraunum (132-
9251).
Ætlimin er að taka árlega jarðvegssýni úr komræktarspildum hjá bændum og hefst söfnun
jarðvegssýna hjá bændum haustið 2001. Mælt verður ólífrænt N (Nmin) og er hugmyndin að
þær rannsóknir verði árlega í mismunandi jarðvegsgerðum og stöðum. Auk þess verða gerða
tilraunir með nituráburð í byggrækt á Korpu og fleiri stöðum.
Greining á eiginleikum plöntuleifa með tilliti til niðurbrots og niturlosunar í jarðvegi.
Samnorrænt verkefni (NKJ)
Þátttakendur em á Norðurlöndunum fimm, við landbúnaðarháskólana í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð og við rannsóknamiðstöðina í Jokioinen í Finnlandi, auk Rala.
Safnað var á þriðja hundrað sýnum alls af ýmsum tegundum nytjajurta við mismunandi
ræktrmaraðstæður. Valin vom sýni fyrir hvert land með sem mestum, og að einhveiju marki
óháðum, breytileika í próteini og ffumveggjum (NDF trénismæling). Stuðst var við NIRR-
mælingar (litrófsgreinigum með innrauðu ljósi) við valið.
Myndin sýnir hráprótein [Rp(NIR)] og tréni [NDF(NIR)] í plöntuleifasýnum sem
valin vom til mælinga á C og N losun.
Eftirfarandi íslenskar plöntutegundir urðu fyrir valinu alaskalúpína, kartöflugras, vallarsveif-
gras, haffar og bygg. Auk þess völdust til mælinga hér á landi gul lúpína og hvítsmári ffá
Noregi, sykurrófublöð ffá Danmörku og til samanburðar milli landa er mælt vallarfoxgras ffá
Svíþjóð.