Fjölrit RALA - 15.09.2001, Blaðsíða 42
Ræktun lúpínu 1999
34
Tilraun nr. 788-00. Sláttutími á lúpínu, Korpu.
Stykki, sem alaskalúpína var gróðursett í vorið 1998, var skipt í 27 tilraunareiti og tilraun með
sláttutíma hófst i júlí 2000. Tilraunaliðir eru áætlaðir sem hér segir, samreitir 3:
a. Slegið 17. júlí og árlega í júlí.
b. Slegið 17. júlí og annað hvert ár í júlí.
c. Slegið 17. júlí og að hausti 2001, ffamhald óákveðið.
d. Slegið 2. ágúst og árlega í ágúst.
e. Slegið 2. ágúst og annað hvert ár í ágúst.
f. Slegið 4. sept. og árlega í sept.
g- Slegið 4. okt. og árlega í okt.
h. i. Slegið 4. okt. og í júlí/ág. 2001, ffamhald óákveðið. óslegið 2000. Slegið í júli/ág. 2001, ffamhald óákveðið.
Slegið Uppskera, þe. hkg/ha
a,b,c 17.7. 41,9
d,e 2.8. 60,3
f 4.9. 55,4
g,h 4.10. 35,3
Staðalfrávik 3,79
Tilraun nr. 785-99. Áburður á lúpínu, Geitasandi.
Gróðursett var í 32 reiti vorið 1999 á snauðu landi þar sem lúpína hefur ekki náð að breiðast
út þótt hún vaxi í grennd. Reitir eru 2x5 m og 33x50 sm milli plantna, þ.e. 60 plöntur í reit.
Um haustið vantaði örfáar plöntur, tæplega eina plöntu í reit að jafnaði. Afföll urðu minni en
þar sem gróðursett var á Geitasandi 1998. Hinn 4.5. voru plöntur, sem höfðu lyfst upp,
stignar niður og hefur það eflaust bjargað sumum. Hinn 14.6. voru gróðursettar plöntur í stað
þeirra sem vantaði. Voru þær sóttar í nágrennið, annars vegar í sáningu frá 1998 og hins
vegar sjálfsánar plöntur úr næsta nágrenni. Nokkrum plöntum var bætt við 3.7. og skipt um
örfáar plöntur frá 14.6. Að meðaltali voru gróðursettar 5,0 plöntur í reit í stað þeirra sem
vantaði og urðu þeir eins jafnir og kostur er.
Borið er á tvo tilraunaliði árlega ffá upphafi tilraunarinnar:
a. P 20 kg/ha
b. P 20 kg/ha, N 33 kg/ha
Borið var á 14.6. Töluverður sjónarmunur var á reitum. Lúpínan var orðin töiuvert
þroskameiri á ábomum reitum. Á reitum með N-áburði (b-liður) er nokkuð um annan gróður
og gætti þess strax fyrsta haustið. Um haustið, 5.9., var þess getið að reitir með N-áburði
væru orðnir fölgrænir.
Ráðgert er að hefja uppskemmælingu 2003 og bera þá á fleiri tilraunaliði.