Fjölrit RALA - 15.09.2001, Page 49

Fjölrit RALA - 15.09.2001, Page 49
41 Korn 2000 Kynbætur á korni og kornræktartilraunir (132-9251) Veturinn 1999-2000 var í meðallagi í flestu tilliti, snjór þó ívið meiri en í meðalári sunnanlands. Jörð var klakalítil og jarðvinnsla hófst í apríl. Sums staðar sunnanlands og vestan tókst að sá í apríl. Um mánaðamót tók svo við rigningatíð og eftir það varð ekki fært um flög í þeim landshlutum fyrr en um miðjan maí. Norðanlands var stöðugur þurrkur og menn luku við að sá komi sínu í maíbyijun. Sumarið var í góðu meðallagi sunnanlands, en með því besta sem gerist norðanlands, bæði hlýtt og sólríkt. Komuppskera var í samræmi við þetta; vel í meðallagi syðra, en meiri en dæmi em til norðanlands og austan. Kom fyrir norðan var nánast allt íullþroska í byijun september. í vor seldust um 360 tonn af innfluttu sáðkomi. Ekki er ljóst hve mikið var notað til viðbótar af heimaræktuðu sáðkomi en líkur benda til þess að það hafi verið allt að 50 tonn. í hvem hektara sáðlands þarf 200 kg af sáðkomi og því má ætla að byggi hafí verið sáð í að minsta kosti 2000 hektara í vor. Með því er talið það bygg, sem ætlað er til grænfóðurs. Gert er ráð fyrir að einir 1500 hektara hafi verið skomir til koms nú í haust. Fjöldi tilraunareita sumarið 2000 Handskomir Vélskomir Alls Úti um land, yrkjasamanburður 24 168 192 Úti um land, annað 48 48 Korpu, kynbætur 66 108 174 Korpu, yrkjasamanburður 388 388 Korpu, annað 286 286 Samtals 90 998 1088 í töflunni em ekki taldar tilraunir með mismunandi sáðdýpt koms og niðurfellingu áburðar. Þær féllu undir rannsóknarverkeftiið Komræktartækni (150-9391) og vom á vegum bútæknisviðs RALA. Þær tilraunir voru gerðar á fimm stöðum í þremur landsfjórðungum og töldu alls 360 reiti. Tilraun nr. 125-00. Samanburður á byggafbrigðum. Undir þetta tilraunanúmer falla tilraunir á nýjum stöðiun auk eiginlegs samanburðar byggyrkja. í sumar vom gerðar 12 tilraunir af þessu tagi. Tilraunir á nýjum stöðum vom 3 og vom aðeins 8 reitir í hverri þeirra. Tilraunir gerðar til að bera saman byggyrki vom 9 talsins og í þeim vom 18-90 reitir. Tilraunimar vom gerðar á eftirtöldum stöðum, litlu tilraunimar em merktar með stjömu.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.