Fjölrit RALA - 15.09.2001, Page 66

Fjölrit RALA - 15.09.2001, Page 66
Korn 2000 58 í öllum tilraummum var töluverður mimur á uppskeru og þroska koms eftir legu reita. Þennan mun er aðeins að litlu leyti hægt að einangra sem blokkamun í venjulegri fervikagreiningu. Reitunum var því eftir á raðað í smáblokkir á tvo vegu, bæði langs og þvers, og tilraunimar gerðar upp með aðferð sennilegustu frávika (Reml). Reitir með sömu áburðardýpt en mis- munandi sáðdýpt vom enda við enda og mynduðu því eðlilega smáreiti. Mat á meðalárangri meðferðar breytist lítillega við þetta uppgjör, en sá kostur var þó valinn að sýna einfold meðaltöl. Mat á staðalskekkju er ekki sýnt. Þar sem liðimir með mónóammoníumfosfati vom í heilum lengjum er ekki unnt að meta árangur af niðurfellingunni nema líta á hveija tilraim sem einstaka endurtekningu. í þremur tilraunum af sex (Korpu, Vindheimum og Miðgerði) fannst ekki marktækur munur á uppskem eða þroska eftir því hversu djúpt var sáð eða áburður felldur niður. í fjórðu tilrauninni (Þorvaldseyri) fannst einungis munur á áburðardýpt í Gunillu (ekki í Arve). Þar gaf dýpst setti áburðurinn marktækt meiri og betur þroskaða uppskem en sá grynnst setti. Þetta verður ekki skýrt og er ekki í tengslum við annan mun. Uppskem- og þroskamunur kom fram eftir meðferðarliðum á Osi og Hvanneyri. Var þó munurinn í sína átt á hvorum stað, enda jarðvegur eins ólíkur og verða má. Á Ósi er jarð- vegur nánast hreinn sjávarsandur, klakalaus allan veturinn, og orðinn vel þurr þegar sáð var eftir nokkurra daga blástur. Á Hvanneyri er aftur á móti reiðingsmýri af verstu gerð, klaki enn í jörðu þá sáð var eða rétt að kveðja. Jörð var þar blaut. í samræmi við það reyndist vel að fella sáðkom djúpt niður á Ósi. Dýpstu niðurfellingarliðimir vom marktækt betri en tveir þeir grynnri og eins reyndist sá næst grynnsti betur en sá grynnsti. Þetta skýrist af því að sandur- inn var þurr í yfirborði, ekkert rigndi næstu vikur og grynnst setta komið hefur spírað lítið og illa. Bæta hefði mátt úr þessu með því að valta akurinn. Tilraunin í heild var mjög breytileg. Á Hvanneyri var annað uppi á teningnum. Þar reyndist best að setja komið sem grynnst og dýpst setta komið virðist hafa átt erfitt uppdráttar vegna bleytu. Þar kom fram samspil meðferðarþátta hjá Gunillu. Grannt sett kom varð líka að hafa áburð í yfirborði ef vel átti að takast til. Það bendir til þess að rætur hafi lítt leitað niður í kuldann. í lokin er tafla um áhrif þess að fella mónóammoníumfosfat (maf.) niður með sáð-kominu. ítrekað skal að ekki var um aukaáburð að ræða. Eins og áður er sagt er skekkja ekki mælanleg í þessum samanburði þar eð áburðarliðimir em í heilum röðum. Uppskera, hkg þe./ha Ko Os Hv Vi Mi Meðaltal Arve Ánmaf. 26,1 19,5 26,0 52,3 47,0 34,2 Með maf. 25,3 17,8 28,1 58,5 48,8 35,7 Gunilla Án maf. 31,6 23,8 9,9 45,6 33,0 28,8 Með maf. 33,8 22,0 12,1 42,0 33,4 28,7 Án maf. Þroskaeinkunn Arve 156 148 129 163 148 149 Með maf. 158 153 126 165 151 151 Gunilla Án maf. 151 147 109 161 145 143 Með maf. 156 145 107 164 149 144 Niðurfellingin sýnist hafa flýtt þroska í 3 tilraunum, þeim sömu og sýndu engin viðbrögð við niðurfellingu áburðar og sáðkoms (Korpu, Vindheimum og Miðgerði). í flestum tilvikum ræður þurrefni koms við skurð miklu um þennan mælda mun (þroskaeinkunn er eins og áður segir summa þúsundkomaþunga, rúmþyngdar og þurrefnis við skurð). Munurinn getur því verið kerfisbundin skekkja orðin til vegna þess að komið hefur þomað í akri meðan á skurði stóð. Áburðarliðimir vom í heilum röðum og tilraunin var skorin röð fyrir röð.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.