Fjölrit RALA - 15.09.2001, Síða 69

Fjölrit RALA - 15.09.2001, Síða 69
61 Skaðvaldar 2000 Svepprót og ranabjöllur (132-9311) Tilraun þessi er unnin í samvinnu við Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Markmiðið er að kanna hvort smitun með svepprót getur bætt mótstöðu lerkiplantna gegn ágangi ranabjöllu. Lerki var plantað í lyngmóa á Haukadalsheiði, þar sem ranabjöllulirfur valda miklum afföllum á lerkiplöntum. Plantað var lerkiplöntum, sem smitaðar vom á mismunandi hátt með svepprótarsveppum og plöntum sem vom án svepprótar. Mældur er vöxtur og metin affoll af plöntunum og þær síðan teknar upp og rótarskaði metinn og lirfur taldar og vigtaðar. Plantað var í tilraunina vorið 1999 og aftur vorið 2000. Ekki fékkst fram marktækur munur á milli liða í neinum af þeim þáttum sem mældir vom. Ryðsveppir (132-9431) Ætlunin er að kanna hvort einstakar arfgerðir af alaskaösp og gljávíði kunna að búa yfir ónæmi gegn nýtilkomnum sveppasjúkdómum. Valinn var tilraunareitur með asparklónum sem staðsettur er í landi Böðmóðsstaða í Laugardal í Ámessýslu. Lokið var við plöntun í reitinn sumarið 1993 og em í honum nær allir klónar sem þekktir em úr ræktun hérlendis. Af gljávíði var valinn efniviður sem ætla má að nýtist í garðrækt hér á landi, þ.e.a.s. sneitt hjá klónum sem ólíklegt má telja að þrífist hér og eins hinum sem telja má að henti ekki sem garðplöntur. Valdir vora tæplega 50 klónar. Græðlingunum var komið í ræktun í gróðrarstöð Barra í Fossvogsdal og vom þeir hafðir í gróðurhúsi í allt sumar. í aspartilrauninni em fjórar plöntur af hveijum klón og endurtekningar em 10. Röðun klónanna innan blokkar er tilviljunarkennd. Gljávíðir verður gróðursettur í tilraunareiti vorið 2001. Tilraunareitir verða á tveimur stöðum, annar inni í landi (á Tumastöðum) en hinn út til strandar (Reykjavík). Landið á Tumastöðum hefur verið unnið á hefðbundinn hátt fýrir skjólbeltarækt, þ.e.a.s. jarðunnið, sett í það áburður og síðan plastlagt. Hvorri tilraun verður skipt í 5 blokkir með 10 plöntur af hveijum klón í blokk. Röðun klóna innan blokka verður tilviljunarkennd með 0,5 m bili milli plantna. Öspin á Böðmóðsstöðum var smituð tvívegis sumarið 2000. í fyrra skiptið (júni) var safnað smitefni, þ.e.a.s. lerkinálum sem vom sýktar af asparryði, og því dreift á plöntumar í tilraunareimum. Seirmi smitunin var gerð með ryðgróum (sýktu asparlaufi) um miðjan ágúst. Fyrsta smitun á gljávíðinum verður sumarið 2001. Þá verður safnað smitefhi, þ.e.a.s. gljávíðilaufi sem er sýkt af gljávíðiryði, og því dreift á allar plöntur í tilraunareitunum. Smitun verður endurtekin á sama hátt ári siðar, því hugsanlegt er að plöntumar bregðist öðmvísi við fyrstu smitun en seinni smitunum. Umfang asparryðs í tilrauninni á Böðmóðsstöðum var metið tvisvar sumarið 2000. í byijun ágúst var árangur af júnísmituninni metinn. Reyndist sú smitun hafa tekist illa. Skýringin er líklega að of lítið af gróum hafi verið á barrinu. Agústsmitunin tókst vel og tilraunin var metin mánuði síðar. Meginniðurstaðan er sú að marktækur munur reyndist á klónum hvað varðar þol gegn ryðsveppnum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Fjölrit RALA

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.