Fjölrit RALA - 15.06.2002, Síða 38
Grænfóður 2001
30
Prófun yrkja á markaði (132-9317)
Sumarið 1999 hófust tilraunir með prófun yrkja af einæru rýgresi á markaði. Boðin voru til
prófunar 5 yrki af sumareinæru rýgresi (Westerwoldísku), en eitt hefur verið dregið til baka,
og 3 yrki af vetrareinæru (ítölsku). Til samanburðar eru fjögur eldri yrki. Sumarið 2001 var
lokaár tihaunanna.
Tilraun nr. 778-01. Samanburður á yrkjum af einæru rýgresi, Korpu.
Sáð 7.6., sáðmagn var um 35 kg/ha. Áburður var Græðir 6, 100 kg/ha N voru borin á við
sáningu og 60 kg/ha eftir fýrri slátt 1.8., alls um 160 kg/ha N. Samreitir voru alls 5. Þar af
voru 3 notaðir í uppskerumælingu í tveim sláttum en 2 voru notaðir til að klippa sýni
vikulega, alls 5 sinnum í hveijum reit, og uppskera var svo mæld um haustið um leið og seinni
sláttur. Þessir reitir fengu aðeins áburð um vorið.
Uppskera þe. hkg/ha Þekja 4.7. Arfi Stöngull,
8.8. 14.9. Alls Einsl. 14.9. 0-10 % %
Barspectra 24,7 27,6 52,4 60,0 8,4 2,0 41,0
Barturbo 27,6 26,4 53,9 49,6 8,4 0,9 40,5
Sabroso 22,7 28,7 51,3 49,8 7,2 2,6 43,5
Condado 28,7 27,0 55,7 51,3 8,2 1,9 44,7
Gipsyl 28,4 25,1 53,5 54,4 8,4 0,9 53,0
Andy 25,2 29,0 54,2 57,6 8,4 2,5 41,6
Sumareinœrt 26,2 27,3 53,5 53,8 8,2 1,8 44,1
Barmultra 16,7 31,8 48,6 37,7 7,6 4,3 15,1
Barextra 15,1 33,0 48,1 39,2 7,0 4,4 23,2
Barilia 15,5 32,8 48,3 49,0 7,0 4,9 21,4
Danergo 17,0 33,5 50,5 41,3 7,6 5,2 25,7
EF 484 Dasas 22,2 31,4 53,6 47,3 8,2 U 22,2
Vetrareinœrt 17,3 32,5 49,8 42,9 7,5 4,0 21,5
Staðalsk. mism. yrkja 1,85 1,40 2,03 3,90 0,45 1,23 2,46
Rýgresið kom fremur seint og ójafnt upp en arfi var lítill. Það var því lengi gisið og voru
reitum gefhar einkunnir 4.7. EF 484 Dasas er tvílitna, en ekki var tekið tillit til þess í
sáðmagni og getur það skýrt meiri þekju og minni arfa en hjá öðru vetrareinæru rýgresi.
í sýnitökureitum voru klipptar 2 rendur 1 m að lengd vikulega, sumareinært 25.7. til
22.8. og vetrareinært 8.8. til 5.9. Klippt sýni voru fyrst greind í rýgresi og arfa til að mæla
hlut arfa í uppskeru. Hluti af rýgresinu var tekinn og grasinu skipt í blöð og stöngul til að
fmna stöngulhlutfall. Hinu klippta sýni hafði þar með verið skipt í 4 hluta sem voru þurrkaðir
og vegnir. Með uppskerutöflunni hér að ofan er meðaltal allra mælinga á arfa og
stöngulhlutfalli hjá hveiju yrki um sig og í töflu hér á eftir er sýnt meðaltal mælinga á
sumareinæru og vetrareinæru rýgresi í hvert sinn sem sýni voru tekin. Auk þessara mælinga
var reynt að meta skrið sumareinærra yrkja þegar sýni voru tekin. Ekki var beitt skilgreindri
aðferð og eru niðurstöður ekki sýndar. Áberandi var að Gipsyl skreið fyrr og meira en önnur
yrki. Líklega hefur Sabroso komið næst, en minnst hafa líklega Barspectra, Condado og
Andy skriðið.