Fjölrit RALA - 15.06.2002, Page 57
49
Fræ/Skaðvaldar 2001
Frærannsóknir (161-1105)
Gæðaprófanir á sáðvöru voru með hefðbundnum hætti á Möðruvöllum. Prófanir eru til þess
að votta spírunarhæfni og hreinleika sáðvöru sem framleidd er hér á landi og ætluð er til sölu.
Einnig kemur til prófimar innflutt sáðvara sem hefur úrelt gæðavottorð.
Verkun víðifræs (132-9356)
Unnið var við rannsóknarverkefni í samvinnu við Rannsóknastöð skógræktar ríkisins að
Mógilsá og Landgræðslu ríkisins, þar sem markmiðið er að nýta innlendan víði í landgræðslu.
Hlutur RALA er að finna aðferðir til að safna, verka og geyma víðiffæ í meira en eitt ár.
Víðifræi var safnað af Suðurlandi og nokkrar verkunartilraunir gerðar á því.
Árangur var góður og ljóst er að hægt er að safha, verka og geyma víðifræ í a.m.k. 1 ár.
Frærækt fyrir Norræna genbankann (132-9907)
Á undanfömum árum hefur jarðræktardeild séð um endumýjun á nokkrum grasstofnum sem
em í vörslu Norræna genbankans (NGB).
í ár vom settir í frætökureiti hnausar af 9 grasstofnum, sem em í vörslu genbankans. Það em
5 stofnar af vallarsveifgrasi, 3 af túnvingli og 1 beringspuntsstofir. Vemlega var vandað til
verksins, gróðursettir um 180 hnausar af hverjum stofni í gegnum dúk. Borið á eftir gróður-
setningu, sem var um miðjan júlí og aftur smávegis að hausti, 24. september. Haustáburður er
talinn auka ffæsetningu árið eftir.
Svepprót og ranabjöllur (132-9311)
Rannsóknir á svepprót og ranabjöllu em unnar í samvinnu við Rannsóknastöð Skógræktar
ríkisins á Mógilsá. Lögð er áhersla á samspil nytsamra jarðvegsörvera við ranabjöllulirfur.
Ryðsveppir (132-9431)
Kanna á hvort einstakar arfgerðir af alaskaösp og gljávíði kunna að búa yfir ónæmi gegn
nýtilkomnum sveppasjúkdómum. Valdir vom asparklónar úr tilraunareit í landi Böðmóðs-
staða í Laugardal. Lokið var við plöntun í reitinn sumarið 1993 og em í honum nær allir
klónar sem þekktir era úr ræktun hérlendis. Af gljávíði var valinn efniviður sem ætla má að
nýtist í garðrækt hér á landi, þ.e.a.s. sneitt hjá klónum sem ólíklegt má telja að þrífist hér og
eins hinum sem telja má að henti ekki sem garðplöntur. Valdir vom tæplega 50 klónar.
Græðlingunum var komið í ræktun í gróðrarstöð Barra í Fossvogsdal og var síðan plantað í
tilraunareiti i Reykjavík og á Tumastöðum. Sjá Jarðræktarrannsóknir 2000 bls. 60.
Verkefnið gengur samkvæmt áætlun og hafa fyrstu niðurstöður þegar birst í riti
Mógilsár Rannsóknastöðvar Skógræktar (4/2001) og Skógræktarritinu 2001 (bls. 43-48).