Fjölrit RALA - 15.06.2002, Blaðsíða 60
Möðruvellir 2001
52
sumarið 2000 en ekki 2001. Þess vegna fengu sum tún óvenju mikinn áburð. Uppskerumesta
túnið var tvíslegið háliðagrastún sem fékk óvart ofuráburðarskammt (223 kg N/ha) og gaf 72
hestburði þurrefnis. Önnur háliðagrastún gáfu 55 - 67 hestburði og vallarfoxgrastúnin gáfu
57-59 hestburði.
Fóðurgildi uppskerunnar við hirðingu á Möðruvöllum sumarið 2001
Heygerð Melt. Prótein AAT PBV Ca P Mg K
% % g/kg g/kg % % % %
Þurrheysbaggar 1. sláttur 74 17,4 92 12 0,33 0,34 0,19 2,33
Rúlluhey 1. sláttur 71 16,1 76 28 0,33 0,32 0,22 2,19
Rúlluhey 2. sláttur 70 19,6 73 68 0,43 0,36 0,28 2,66
Grænfóður (skjólsáðir haffar) 72 19,1 59 89 0,51 0,47 0,38 5,16
Á meðfylgjandi mynd eru sýnd áhrif sláttutíma á meltanlega orku og prótein við hirðingu.
Meltanleikinn fellur að jafnaði um 0,42% og hrápróteinið um 0,13% við hvem dag sem slætti
er seinkað. I seinni slætti er meltanleikinn ekki háður sláttutímanum en próteinið fellur um
0,36% við hvem dag sem líður á milli slátta (spönn 37 - 57 dagar á milli slátta).
-------------1------------1------------r-----------1------------1------------r
20 25 30 35 40 45 50
Sláttur, dagar frá 1. júní