Fjölrit RALA - 15.11.2004, Page 59

Fjölrit RALA - 15.11.2004, Page 59
Matjurtir 2003 49 Kartöflutilraunir (132-9503) Tilraun nr. 798-03. Flýtiáburður á kartöflur, Þykkvabæ. Gerðar voru þijár tilraunir með áburð á kartöflur í Þykkvabæ. Haldið var áíram að bera hluta áburðar í rásina með kartöflunum. Til þess var notaður áburður frá Norsk Hydro sem ber vöruheitið OPTI START™ og er mónóammóníumfosfat (NP 12-23). Þessi flýtiáburður var einn þriggja þátta. Hinir voru viðbót af nitri og viðbót af kalíi við þann grunnáburð sem bændurnir nota. Auk þess voru tveir aukareitir með gifsi til að prófa áhrif þess að bera á kalsíumáburð. Þættir tilraunarinnar voru þessir: A. Staðsetning OptiStart al Með öðmm áburði a2 Með kartöflum B. ViðbótafN NO 0 N (engin viðbót) N1 40 N = 120 kg/ha Kjami C. ViðbótafK K0 0 K (engin viðbót) K1 83 K = 200 kg/ha kalísúlfat Gifs var borið á aukareiti í miðri tilraun, 200 kg/ha. Þessir reitir voru annar með K0 og hinn með Kl, þ.e. kalísúlfat á annan reitinn. Önnur meðferð var A1 og N0, þ.e. OptiStart með áburði (þó ekki í Hákoti T) og án aukaskammts af N. Reitir voru 3 m í tveim röðum, 72 sm milli raða í tveim tilraunum í Hákoti og 75 sm í Vatnskoti. Samreitir voru 2 og fjöldi reita í hverri tilraun því 2x2x2x2+2=18. Garðurinn í Hákoti T var hvíldur með byggi 2002 og hálmurinn plægður niður. í Hákoti S höfðu kartöflur verið ræktaðar samfellt í 3 ár. Garðurinn í Vatnskoti heflir verið ræktaður frá þvi um 1970. Hann er mjög sendinn og hættir til að fjúka. í Hákoti S var notað Premier en Gullauga í hinum tilraununum. Grunnáburður í Hákoti var 1200 kg/ha af áburði frá ísafold, 12-12-17. Það jafngildir 144-63-169 kg/ha N-P-K. í Vatnskoti var áburðurinn 1100 kg/ha af Græði 1, 132-72-155 kg/ha N-P-K. Auk þess fengu allir reitir 83 kg/ha af OptiStart (NP 12-23), nema gifsreitir í Hákoti T. Grunnáburður alls var því 154-82-169 í Hákoti og 142-91-155 N-P-K í Vatnskoti. Bændumir gáfu upp magn gmnnáburðar og var hann ekki mældur. Sett var niður og borið á 27. maí. Kartöflur voru settar og gmnnáburði dreift með niðursetningarvél og hreykt þegar tilraunaáburði hafði verið dreift. Með vélunum var áburði beint nokkuð til hliðar við útsæðið báðum megin. Tvö jarðvegssýni vom tekin úr hverri tilraun þegar sett vat niður. í eftirfarandi töflur em einnig niðurstöður úr tilraun á Korpu þar sem tekin vom fjögur jarðvegssýni. Steinefni vom mæld í AL-lausn og pH í vatni. Jarðvegur var þurrkaður við 30-35°C, en nokkur tími leið eftir það, þar til kolefni var mælt. C er % af þurrum jarðvegi, P mg á 100 g af þurrum jarðvegi og katjónir mj. á 100 g af þurrum jarðvegi. C P Ca Mg K Na pH Hákoti, T 1,25 3,2 5,1 2,0 0,82 1,45 5,7 Hákoti, S 1,68 7,1 7,5 3,4 0,87 1,52 5,7 Vatnskoti 1,47 6,1 7,0 2,9 1,30 1,20 5,6 Korpu 3,2 0,65 7,5 1,5 0,71 0,96 6,2 Tekið var upp 27. ágúst. Grösin vom sviðin um hálfúm mánuði áður í Hákoti T, en ekki í hinum tilraununum. Sums staðar var niðursetningin nokkuð óregluleg. Grös vom taiin og tekið upp úr öllum reitnum, nema grös sem vom á mörkum reita. Þau vom einnig talin og talin til beggja reita jafnt. Á næstu dögum var uppskeran flokkuð og vegin, sterkja mæld með flotvog og þurrefni mælt. Ein þurrefnismæling glataðist bæði í Hákoti S og Vatnskoti.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.