Fjölrit RALA - 15.11.2004, Side 66

Fjölrit RALA - 15.11.2004, Side 66
Skaðvaldar/Landgræðsla 2003 56 Ryðsveppir (132-9431) Árið 2000 hófst rannsóknaverkefnið Varnir gegn ryðsveppum á ösp og gljávíði. Ráðist var í þetta verkefni vegna þess að árið 1999 uppgötvaðist nýr ryðsjúkdómur í alaskaösp hér á landi og einnig hafði nýr ryðsveppur verið að breiðast út í gljávíði í nokkur ár. Meginmarkmið þessa verkefnis var að finna ryðþolna klóna af þessum tijátegundum. Einnig var útbreiðsla ryðtegundanna könnuð árlega. Nýtt kynbótaverkefhi í ösp hófst svo árið 2002, þar sem nýttar eru niðurstöður fyrra verkefnis. Þremur klónum sem komið höfðu vel út í smitunartilraununum var vixlað við aðra efiiilega klóna og innbyrðis, alls 18 víxlanir. Vorið 2003 voru teknir græðlingar af 12.000 plöntum sem eru afkvæmi úr víxlunum, og þeim fjölgað fyrir tilraunir með ryðþol. Sumarið 2003 voru tilraunir gróðursettar á Sóleyjabakka í Hrunamannahreppi og á Reykhólum í Reykhólasveit. Mat á ryðþoli gljávíðiklónanna var gert haustið 2002, en er lítt marktækt vegna þess hve plöntumar eru enn litlar. Haustið 2003 var tilraunin metin í annað sinn. Ræktun á röskuðum svæðum (132-9487) Reynd er notkun innlendra úthagaplantna í vegfláa í Hrunamannahreppi. Haustið 2001 hófúst tilraunir til að prófa mismunandi aðferðir við ræktun á röskuðum svæðum. Prófaðar em sáningar, flutningur heilla gróðurtorfa og útplöntun. Árangur aðgerða verður mældur með gróðurgreiningu. Sumarið 2003 var þekja tegunda mæld i vegfláanum og blómgun og fræframleiðsla skráð. Nokkur munur reyndist vera á haust- og vorsáningu þar sem rauðsmári var með mun meiri þekju eflir vorsáningu og það var til þess að aðrar tegundir þöktu minna. Af innlendu úthagategundunum reyndust kattartunga og gulmaðra vera fljótastar að ná fótfestu, bæði með fræmyndun og renglumyndun en giljaflækja, gullkollur, holtasóley og hvítmaðra mynduðu einnig fræ. Eftirverkun seinvirkra og hefðbundinna áburðargerða var mæld í tilraun sem staðið hefur ffá 1992.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.