Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 11

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 11
1. INNGANGIJR Eftir að hin svonefnda rúllutækni við heyskap ruddi sér til níms hafa á Hvanneyri verið gerðar ýmsar tilraunir með verkun heysins í því skyni að finna hentugar og ódýrar leiðir til öflunar vetrarfóðurs. Nokkum hluta þessara tilrauna má kalla samtengdar tilraunir þar eð fylgst er með ferli heysins frá slætti til fóðrunar, þannig að einnig megi meta viðbrögð búfjárins við því (Bjarni Guðmundsson 1995). Fyrsta verkefni þessarar tegundar var samanburður á heyi verkuðu í rúllum við súgþurrkaða töðu sem gerður var á árunum 1988/89 og 1989/90. Voru ær fóðraðar á heyinu vetrarlangt (Sigríður Jónsdóttir 1991). Svipuð fóðurgæði náðust með báðum aðferðum. Þurrheyið geymdist heldur betur en útihey í rúllum. Hvorki kom fram munur á frjósemi ánna á milli hópa né fallþunga lamba þeirra að hausti. Sumarið 1990 hófst síðan rannsókn á Hvanneyri, er standa skyldi tvö ffamleiðsluár, þar sem kanna átti áhrif þurrkstigs heysins við bindingu á verkun þess og fóðurgildi handa sauðfé. Þótt forþurrkun hafi oftast nær bætandi áhrif á verkun heys við gerjun verður henni ekki alltaf við komið án áfalia í fslenskri sumarveðráttu. Því þótti rétt að rannsaka þennan áhrifaþátt og þá í þeim mæiikvarða að byggja mætti mat á hagkvæmni heyverkunaraðferðanna á niðurstöðum rannsóknarinnar. f rannsókninni voru bomir saman tveir liðir: a: Þvalt rúlluhey - lítið forþurrkað (35-45% þurrefni). b: Þurrlegt rúlluhey - mikið forþurrkað (50-65% þurrefni). Metinn var árangur verkunar heysins, Iieyát ánna svo og þrif þeirra og frjósemi. Hér verður sagt ifá rannsókninni og helstu niðurstöðum hennar. 2. FRAMKVÆMD RANNSÓKNARINNAR 2.1 Heyöflunin Bæði árin var megin uppistaða tilraunaheysins fengin af sömu túnspildunum. Eru þær á framræstu mýrlendi. Þær fengu hefðbundinn túnskammt tilbúins áburðar að vori (500 kg/ha af Græði 8) en auk þess nokkra haustbreiðslu kúamykju bæði árin. Aldur ræktunarinnar endurspeglast í gróðurfari spildnanna. í uppskeru fyrri sláttar fór mest fyrir snarrótarpunti (40%) og vallarsveifgrasi (15-20%). Ennfremur var þar knjáliðagras (10- 20%), língresi (5-15%), vallarfoxgras (5-15%) og blómjurtir (10%). í hánni (1991-1992) bar hlutfallslega meira á vallarsveifgrasi en í fyrri slátfar heyinu. Fyrra árið var einnig tekið með hey af þremur litium spildum en á þeim rfktu vallarfoxgras og vallarsveifgras að jöfnu. Að heymagni svaraði uppskeran af þeim til liðlega þriðjungs tilraunaheysins. í 1. töflu er yfirlit yfir heyöflunina: 5

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.