Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 18
4. tafla. Breytingar á fóðurgildi heysins við geyrnslu
Meltanleiki, % Hráprótein, g/kg þe.
a: þvalt b: þurrlegt a: þvalt b: þurrlegt
v.bind. v.gjaf. v.bind. v.gjaf. v.bind. v.gjaf. v.bind. v.gjaf.
1990/91 77,4 76,2 74,9 76,0 144 154 148 147
1991/92 69,9 69,3 69,5 69,5 149 154 142 148
Meðalhlutfall 100 99 100 101 100 105 100 102
FE/kg þe. 0,77 0,76 0,75 0,76
Það urðu sáralitlar breytingar á fóðurgildi heysins við verkun þess og geymslu í
böggunum. Meltanleikinn féll ívið meira í a-lið (þvala heyinu) en hinu sem meira var
forþurrkað. Munurinn er þó innan skekkjumarka mæliaðferðar meitanleikans.
Hrápróteinhlutfallið steig lítið eitt við geymsluna. Má líklega skýra það með því litla
þurrefnistapi sem mældist. Sennilega hefur það einkum verið smávægilegur bruni
kolvetna vegna öndunar. Tölumar neðst í 4. töflu sýna nokkru meiri mun á milli liðanna a-
og b- hvað snertir orkugildi heysins við bindingu heldiu- en fram kom í 3.1. Skýringin á
mismuninum liggur í því að tölumar í 4. töflu byggjast á lítið eitt öðru gagnasafni en
tölumaríkafla3.1.
Þær litlu breytingar, sem urðu á fóðurgildi heysins frá bindingu til gjafa, styðja
tölumar um reiknað þurrefnistap (sjá kafla 3.3.3). Það virðist því sem geymslutapið
miðað við meltanlegt þurrefni hafí hvomgt tilraunaárið farið fram úr 2-3%. Má telja það
góða nýtingu og sambærilega við árangur vel heppnaðrar verkunar (gerjunar) votheys
(McDonald et al. 1991). Myglumyndunin hefur sýnilega ekki spillt mældu fóðurgildi
heysins. Þó má sjá að heldur meiri rýmun meltanleika þurrefnis heysins varð það árið sem
hvað mest bar á myglu í þvf (a-liður 1990/1991). Áhrifin eru þó það lítil að vart er orð á
gerandi.
3.4 Heyát ánna
Niðurstöður mælinga á heyáti ánna em sýndar í 5. töflu. Heyátið er reiknað í kg þe. á á og
dag og er greint eftir fóðmnartímabilum, sbr. 2. töflu. Fyrra árið vora veturgömlu æmar
(v) og þær eldri (f) fóðraðar sitt í hvom lagi um tíma. Meðaltal heysáts á tilraunatímabilum
er vegið eftir fjölda daga hvers tímabils. Tölur í svigum tákna meðalþurrefnisprósentu
heysins við gjafir:
12