Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 22

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 22
3.7 Ullargæði Fyrra tilraunaárið var gerð einföld athugun á áhrifum heytegundanna á ullargæðin. Var hún gerð þannig að eftir að æmar höfðu verið fóðraðar á tilraunaheyinu í tæpar sjö vikur (9. janúar 1991) voru tekin ullarsýni af völdu úrtaki úr hveijum aldursflokki þeirra. Valdar voru 10 ær úr hvorum höpi. Ullarsýnin vora tekin á þremur stöðum: af herðum, síðu og læri. Þvoítarýmun ullarsýnanna var mæld. Metið var heymor svo og toglitur ullarsýnanna. Fylgt var aðferð sem Stefán Aðalsteinsson og Margrét Grétarsdóttir (1978) lýstu. Þá mat þjálfuð ullarvinnslukona mýkt togs og þels eftir sérstöku matskerfi (Jóhanna E. Pálmadóttir - persónuleg heimild 1991). Allar einkunnir era þannig að hæst var gefið 10 væri sá eiginleiki ullarinnar eins og best er á kosið. Meðalniðurstöður mælinga og mats era sýndar í 8. töflu: 8. tafla. Mæld og metin gæði ullar tilraunaánna Herðaull Síðuull Læraull Meðaltal Þvottarýmun, % a - þvalt hey 23,0±3,6 26,4±4,1 28,3±5,3 25,9 b - þurrlegt hey 20,3±3,3 26,7+3,9 29,8±5,0 25,6 Heymor, einkunn a - þvalt hey 9.1 9,6 9,7 9,5 b - þurrlegt hey 8,8 9,8 9,1 9,2 Toglitur, einkunn a - þvalt hey 6,9 7,2 4,8 6,3 b - þurrlegt hey 6,8 6,7 4,8 6,1 Mýkt togs, einkunn a - þvalt hey 7,0 7,2 4,8 6,3 b - þurrlegt hey 5,8 5,8 4,8 5,5 Mýkt þels, einkunn a - þvalt hey 7,7 8,2 6,8 7,6 b - þurrlegt hey 7,0 7,4 6,6 7,0 Fkki reyndist munur á milli hópanna tveggja vera marktækur hvað neinn þessara eiginleika snerti. Breytileikinn innan hvors hóps var töluverður. Nokkurrar tilhneigingar gætir í þá átt að ull ánna, sem fengu þvala heyið, hafi hlotið jafnhærri gæðaeinkunn en ull af ánum sem fengu þurrlega rúlluheyið. Einna mestur varð munurinn á einkunnum fyrir mýkt ullarinnar. Þar virtist þvala rúlluheyið gefa mýkri ull, jafnvel þó ær beggja flokka væra í sama húsi. Sennilega mætti því vænta meiri munar á milli hópanna væra hús aðskilin því vitað er að húsaloftið hefur mikil áhrif á eiginleika ullarinnar (Grétar Einarsson 1980). Sú ull var metin hæf til handvinnslu sem hlaut einkunnina 7 eða hærra fyrir mýkt togs og þels. Væri nú öllum sýnum skipt eftir því hvora megin þessa marks einkunn þeirra féll kom í ljós nær marktækur munur á flokkuninni (0,10>p>0,05); m.ö.o. að lilutfall vinnsluhæfra ullarsýna var hærra í ærhópnum sem fékk þvala rúlluheyið (66%) en f hinum sem alinn var á þurrlegu heyi (54%). Þessi athugun var ekki endurtekin seinna tilraunaárið enda æmar þá allar rúnar þegar eftir hýsingu um haustið. 16

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.