Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Page 29

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Page 29
1. INNGANGUR Um og upp úr 1990 fóru að koma á markað rúllubindivélar með hnífabúnaði. Þess var vænst að með því að skera heyið líkt og gert er í fjölhnífavögnum mætti fá þáttari bagga og þannig draga úr kostnaði við geymslu heysins. Þess var og vænst að skorið mundi heyið verkast betur og ef til vill einnig verða lystugra. Samanburður á verkun og notagildi skorins heys við hefðbundna meðferð heys í rúllum var hafinn á Hvanneyri sumarið 1991. Liggur þegar fyrir uppgjör tveggja tilrauna þar sem verkun heysins og fóðrunarvirði fyrir gemlingslömb var rannsakað (Bjami Gúðmundsson 1993 og 1994). Ekki bentu niðurstöður þeirra til þess að mikið væri að vinna við að skera heyið, sé miðað við þéttleika heysins í böggunum, verkun þess og lystugieika. Niðurstöður hliðstæðra tilrauna erlendis frá liggja ekki fyrir enn. Framleiðsluárið 1992-1993 var gerð tilraun með samanburð á verkun og fóðurgiidi skorins og óskorins rulluheys handa ám. Tilraunina skyldi gera í þeim mælikvarða að heyið entist til fóðrunar ánna mestan hluta vetrar, og að aðstæður allar líktust því sem gerist við heyöflun handa sauðfé og fóðrun þess. Byggja skyldi sem mest á heyfóðrun og var því reynt að miða heyöflunina við það að nokkur hluti heysins væri mjög efnaríkt hey en annað aðeins gott viðhaldsfóður. 1. mynd. Hnífabúnaður í rúllubindivél: 1. sópvinda, 2. forþjappa, 3. hnífaröð. Hér verður greint frá framkvæmd tilraunarinnar og niðurstöðum hennar. 2. FRAMKVÆMD TILRAUNARINNAR 2.1 Heyöflunin í tilrauninni var heysins aflað í tvennu lagi. Helstu upplýsingum um sláttutíma, grastegundir og fleira er raðað sarnan í 1. töflu. Bundið var með rúllubindivél af gerðinni WELGER GP 200 (Bútæknideild 1992). Það er lauskjama rúliubindivél með forþjöppu og skurðarbúnaði (sjá 1. mynd) en hann má tengja og aftengja á andartaki, Bindingu var hagað þannig að hey úr öðrum hveijum garði var skorið við bindinguna. Að öðra leyti var meðferð heysins hin sama. Böggum var komið fyrir til geymslu óyfirbreiddum í þriggja laga stæðu utanhúss. 23

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.