Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Síða 31
1. skeið 16.11.-18.12. Tilraunahey (I) eftir átlyst + fiskmjöl (hluti);
2. skeið 19.12.-5.2. Tilraunahey (II) - takmörkuð; föst gjöf;
3. skeið 6.2. - 16.3. Sama fóðrun allra hópa - engjahey úr rúllum
(óskorið);
4. skeið 17.3.- 9.5. Tilraunahey (I) eftir átlyst;
5. skeið 10.5. og fram úr Sama fóðrun allra hópa - súgþurrkuð taða, og síðan
túnbeit;
Við gjafir voru sýni tekin úr hverjum bagga um leið og hann var opnaður. Daglega
voru tekin sýni úr moði og þeim blandað saman í eitt sýni frá hveijum hópi fyrir vikuna.
Sami háttur var hafður á sýnatöku úr heygjöf á öðru og þriðja fóðrunarskeiði. Frá og með
öðru fóðrunarskeiði (19. desember 1992) voru ærnar í undirflokkum hvors aðalhóps
aldar saman. Á tímabilinu 1.-12. mars voru æmar rúnar að nýju (snoðaðar). Sauðburður
gekk í garð 4. maí. Eftir 10. maí var hey ekki vigtað í æmar en hins vegar séð til þess að
ær úr báðum aðalflokkum fengju sambærilegan viðurgeming í fóðri.
Daglega var allt fóður ánna vegið svo og moð frá þeim. Gefið var einmælt. Við
fóðmn á tilraunaheyinu var dagsgjöfin höfð það mikil að moð yrði 5-10% hennar. Á öðm
og þriðja skeiði var gjöfin höfð næg en takmörkuð og þá hin sama fyrir báða hópana.
Gát var höfð á heyslæðingi. Tilraunaæmar vom vegnar reglulega, oftast hálfsmánaðar-
lega. Um leið voru hold þeirra metin til stiga. Sami matsmaðurinn annaðist það verk
vetrarlangt.
3. NIÐURSTÖÐUR TILRAUNARINNAR
3.1 Rúmþyngd heysins
Mæld var rúmþyngd heysins í böggum að lokinni bindingu. Mælingamar voru gerðar á
fimm böggum úr hvorum lið af hverri spildu. Niðurstöður þeirra era sýndar í 2. töflu.
Tölumar tákna kg þurrefnis í bagga, en reikna má ineð að rúmmál þeirra hafir verið 1,61
rúmmetrar:
2. tafla. Samanburður á rúmþyngd heysins - kg þe. í rúilubagga
I. - spilda Sk. 1
I. - spilda Sk.2
II. - spilda B2
Heilt hey
278+7
275±10
316±11
Skorið hey
298± 1
285±14
322±11
P
<0,01
> 0,05 em
> 0,05 em
Heyið féll mjög þétt í baggana við bindingu eða sem svaraði til 184 kg þurrefnis f
rúmmetra. Væri heyið skorið rúmaðist að jafnaði 4% meira þurrefni í böggunum. Það var
aðeins á einni spildu af þremur sem þétfleikamunurinn reyndist vera marktækur. Þar var
heyið einnig hvað þurrast við bindingu. f fyrri mælingum hafa ekki komið fram eindregin
áhrif skurðar heysins á þéttíeika þess í rúlluböggum (Bjarni Guðmundsson 1993).
25