Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Page 41
1. INNGANGUR
Sumarið 1992 kom til prófunar hjá Bútæknideild Rala á Hvanneyri rúllubindivél af
gerðinni ORKEL GP 1202 (Grétar Einarsson 1994). Hún hefur tætivals í stað sópvindu
og getur því bæði slegið og smækkað heyið nokkuð um leið og hún tekur það tíl
þjöppunar og bindingar í rúllu. Má því segja að vélin sé sláttutætari sambyggður
rúllubindivél. Því kemur vel tíl álita að kalla hana sláttubindivél. Löng reynsla er fyrir
notkun sláttutætara við votheysgerð sem sýnir að smækkun grasstráanna hefur hagstæð
áhrif á framvindu gerjunar einkum vegna þess að tætt heyið fellur þétt saman auk þess
sem tætingin greiðir leið æskilegra mjólkursýrugerla að plöntusafanum.
Rétt þótti því að rannsaka áhrif
ORKEL-sláttubindivélarinnar á verkun
heysins og notagildi þess við fóðrun tíl
viðbótar við þá rannsókn á tæknilegum
eiginleikum hennar sem gerð var hjá
Bútæknideild Rala. Voru tvær tílraunir
þess efnis gerðar á vegum Bænda-
skólans á Hvanneyri í samvinnu við
Bútæknideild framleiðsluárin 1992-1993
(I) og 1993-1994 (II). Verður nú sagt
frá tilraununum.
2. FRAMKVÆMD TILRAUNANNA
í tilraununum var hey úr böggum bundnum með ORKEL-vélinni borið saman við hey
bundið með hefðbundnum rúllubindivélum (laus- og fastkjama-). f báðum tilraunimum
var heyið forþurrkað og bundið úr múgum enda reynsla fyrir því að forþurrkað verkast
hey oftast hvað skárst í nillum og verður lystugt. Stefnt var að forþurrkun heysins að
45% þurrefni.Við bindingu var görðum skipt og annar hver múgi tekinn í hvora/hverja
vél til þess að jafna áhrif hugsanlegs mismunar á g.aslagi spildnanna. Tilraunaaðstatður
voru þessar:
Tilraun 1 (1992-1993): Heyið var tekið af spildu sem einkum var vaxin vallarsveifgrasi
(um 50-60%), vallarfoxgrasi (um 10-15%) og snarrót (um 10-15%). Vallarfoxgrasið var
rétt óskriðið. Spildan var slegin um kl. 15 þann 12. júlí 1992. Heyinu var dreift með
heyþyrlu árdegis næsta dag og því snúið upp úr hádegi. Þá var ljómandi góður þerrir: sól
á heiðum himni, hægviðri árdegis en síðan V- og SV-gola, Heyið þomaði mjög hratt.
Réttum sólarhring eftir sláttinn var heyið garðað. Binding stóð frá kl. 16 til kl. 21. Til
samanburðar var höfð rúllubindivél af gerðinni WELGER RP 200. Reynt var að binda
samtímis með báðum vélunum en vegna tæknitafa við notkun ORKEL-vélarinnar tók
35