Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 43
Utan tilraunaskeiða (nr. 1 og nr. 3) var reynt að tryggja sömu fóðrun ánna f báðum
hópum. Á tilraunaskeiðunum tveimur var ánum gefið hey eins og þær vildu éta en reynt
var að halda dagsgjöf þannig að leifar næmu 5-10% hennar.
3. NIÐURSTÖÐUR TILRAUNANNA
3.1 Rúmþyngd heysins
Mæld var rúmþyngd heysins í böggum að lokimii bindingu. Til reiknings á rúmmáli
bagganna var ummál þeirra mælt á belti sem lá fjórðung af lengd bagga frá enda hans.
Lengd bagga var talin jöfn breidd baggahólfs í bindivél. Þessi reyndist rúmþyngd heysins
í böggunum:
2. tafla. Rúmþyngd heys í böggum mismunandi rúllubindivéia
Gerð vélar Gerð heys Þurrejhi % Rámþyngd heysins - kg þurrefhis í m3
Tilraunl
WELGER Heilt 45,8 165 ±12
ORKEL Tætt 49,3 134 ± 20
Tilraun II
KRONE Heilt 51,4 148 ±22
MF Heilt 54,5 201 ± 9
ORKEL Tætt 53,4 146 ± 17
Nokkur breytileiki var í þurrefnisprósentu heysins innan tilrauna en hún hefur jafnan áhrif
á það hve fast hey verður f rúlluböggum. WELGER-vélin í tilraun I var með forþjöppu
(Bútæknideild 1992). Því batt hún heyið fasL Með smækkun heysins í ORKEL-
sláttubindivélinni náðist ekki sama þjöppun heysins. Marktækur mismunur var á
rúmþyngd heysins í böggunum á milli vélanna WELGER og ORKEL (0,01<p<0,05).
f tilraun II reyndist ekki vera marktækur munur á rúmþyngd heysins í böggum úr
vélunum KRONE og ORKEL. Þjöppunarhættir þeirra eru hinir sömu (lauskjarnavélar).
Um smækkun heysins f ORKEL-bindivélinni virðist ekki hafa munað enda heyið, sem
notað var, ffemur smágert. Hins vegar batzt heyið mun fastar með MF-vélinni en það er
fastkjamavél (p<0,05). í böggum úr henni rúmaðist liðlega þriðjungi meira þurrefni en í
böggum samanburðarvélanna. MF-baggamir bundust einnig jafnfastar en hinir. Ekki er
vitað hvort þar eru fremur á ferð ekilsáhrif eða vélaáhrif því sinn hvor ekillinn ók MF og
KRONE/ORKEL.
3.2 Verkun heysins
3.2.1 Myglumyndun
Þegar kom að gjöfum á heyinu var sýnileg mygla metin á böggunum eftir að
plasthjúpnum hafði verið svipt af þeirn. Myglumatið var strangt. Myglustigi var skipt
37