Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 44

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 44
eftir þremur flokkum: myglulaust, - mygluvottur sem táknar minnsta myglublett sjáanlegan á endum eða hlið bagga og loks mikil mygla ef blettimir voru fleiri eða áberandi og þá jafnan á fleiri en einum stað á og í bagganum (sjá 2. mynd). mygluiaust mygluvottur mikll mygla Tilraun I Tilraun II 2, mynd. Mat á myglu í rúliuböggum - heilt hey og tætt. í tilraun I var myglan í þremur böggum (tveimur með tættu heyi og einum með heilu) það mikil að ekki var talið óhætt að gefa ánum það. í tilraun II bar öllu meira á myglu en í tilraun I. Ekki var mikinn mismun á myglumyndun að sjá á milli tilraunaliðanna (II). Um þriðjungur bagganna í báðum liðum féll í flokk mikillar myglu. Engu heyi þurfti þó að henda frá við gjafir, ef frá er talinn einn baggi með tættu heyi sem á leyndist slysagat. í stæðu heila heysins voru myglulausir baggar nokkru fleiri en í stæðunni með tætta heyinu. Þar er þó ekki um marktækan mismun sé að ræða. Séu baggar flokkaðir eftir því hvort þeir voru gefnir um fengitíð (á 1. skeiði) eða undir vor (á 3. skeiði), reyndist hlutfall myglaðra bagga (þriðji flokkur - mikil mygla) vera þetta: 3. tafla. Hlutfail mygiaðra bagga eftir heygerðum og gjafatíma Gjafatími Tilraun I Tilraun II Heilthey Tætthey Heilthey Tœtthey á 1. skeiði (haust) 0% 43% 20% 33% á 3. skeiði (vor) 33 - 17 - 50 - 38 - í heild bar heldur minna á myglu í böggum með heilu heyi en í böggum með tætta heyinu. Meira bar á myglu á yfirborði rúllubagganna er voraði. Kvað eínkum að því f böggum með heilu heyi. Þessara geymslutímaáhrifa hefur áður gætt í tilraunum á Hvanneyri (Sigrfður Jónsdóttir og Bjami Guðmundsson 1992). 38

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.