Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Qupperneq 51
heila heyið öllu betur en það tætta ef eitthvað var. Sáralítill munur var á mældum
meltanleika þurrefhis heytegundanna og hrápróteinmagni þeirra. Það sama átti einnig við
um þungabreytingar ánna og holdafar, sem og afurðir mældar í frjósemi og burðarþunga
ánna. Síðara tilraunaárið virtist þó fóðumýting og fijósemi ánna á tætta heyinu hafa verið
öllu betri/meiri en hinna sem fengu heila heyið.
Niðurstöður þessara tilrauna benda ákveðið til þess að mismunar á aðferðunum
(bindivélunum) sem saman voru bomar sé ekki að vænta í verkun heysins eða notagildi
þess við fóðrun heldur ráði þar aðrir þættir, svo sem kaupverð vélanna, afköst,
aflþörf/orkunotkun og notagildi þeirra í heyöflunarferlinum.
5. ÞAKKIR
Öllum þeim starfsmönnum Bændaskólans á Hvanneyri og Bútæknideildar Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins sem unnu að þessum tilraunum er þakkað framlagið.
Sérstaklega ber að nefna fjárhirðana á Hvanneyri vetuma 1992-1994, þá Jón E. Einarsson
frá Mófellsstaðakoti og Vagn H. Sigtryggsson frá Hriflu. Þeir önnuðust einnig mat á
rúlluheyinu, heysýnatöku og fóðurvigtun. Guðmundur Hallgrímsson ráðsmaður sá með
fjárhirðum um vigtun ánna og holdamat. Loks ber að þakka Jötni hf í Reykjavík fyrir
afnot af sláttubindivélinni ORKEL GP 1202 vegna tilraunanna.
Haukur Gunnarsson cand. mag., endurmenntunarstjóri á Hvanneyri, snyrti til og
lagfærði enska þýðingu á yfirlitum rannsóknaskýrslnanna í riti þessu. Fær hann bestu
þakkir fyrir.
6. HEIMILDIR
Bjami Guðmundsson 1993. Áhrif forþurrkunar, heyskurðar og hjálparefna á verkun heys í
rúlluböggum. Ráðunautafundur 1993, bls. 222-231.
Bútæknideild 1992. Búvélaprófun nr. 627/1992. Rannsóknastofnun landbúnaðarins, 6 bls.
Grétar Einarsson 1994. ORKEL rúllubindivél - Áfangaskýrsla um niðurstöðurprófunar.
Rannsóknastofhun landbúnaðarins, bútæknideiid, apríl 1994; óbirt handrit, 3 bls.
Lingvall, M. og Lingvall, P. 1992. Rundbalsensilering med ORKEL rundbalspress - Studier av
innmatningssátt och tillsatsmedel. Grovfoder -forskning - tillampning; Sveriges
lantbruksuniversitet, 1 (1992):5-14.
Randby, Á.T. 1996. Propionsyre eller maursyre som ensileringsmiddel til rundballer. IHF, NLH,
Hellerud Forspksgárd. Rapport nr. 19, 28 bls.
Sigríður Jónsdótlir og Bjami Guðmundsson 1992. Samanburður á heyverkunaraðferðum -
súgþurrkað hey og hey úr rúllum handa ám. Freyr, 88(23):916-920.
45