Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Page 9

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1977, Page 9
RANNSÓKNIR Á VALLARFOXGRASI (ENGMO) 7 Dagar frá slætti 2. mynd. I. Áhrif hrakningsins á hlutfall blaða og stöngla (þurrefni). II. Áhrif hraknings á meltanleika þurrefnis blaða og stöngla. III. Áhrif hrakningsins á hlutfallslegt magn melt- anlegs þurrefnis blaða og stöngla (vallarfox- gras). Fig. 2. I. The effect of the length of the field drying period (days) on the leaf/stem — ratio (dry matter). II. The effect of the length of the field drying period on the DM-digestibility of leaves and stems. III. The effect of the length of the field drying period on the relative quantity of digestihle dry matter leaves and stems of Phleum pra- tense. leg, og gæti það bent til þess, að öndunar- taps hafi gætt á svipaðan hátt á öllum stig- um hrakningsins. Sé litið á Unurit 2-III, sést, að tap meltanlegs þurrefnis úr blöðunum var mest fyrsta sólarhring eftir slátt. Líkleg skýring er sú, að þarna hafi að mestu verið um að ræða molnun blaða, enda eru þau mjög fljót að þorna, sbr. I. töflu Samkvæmt mynd 2-111 virðist hlutfallslegt magn meltanlegs þurrefnis í stönglum hafa aukizt nokkuð. Um gæti verið að ræða mæli- skekkjur, en ekki er óhugsandi, að efnanám hafi orðið í stönglunum, m. a. vegna þess, hve hægt þeir þornuðu. I tilraun þessari lá nokkur hluti heysins í görðum, og virðist það hey hafa varið sig bemr en hitt, sem lá flatt. Af tilrauninni virðist mega draga þá ályktun, að efnabreytingar vallarfoxgrass við hrakning á velli séu einkum í því fólgnar, að magn og fóðurgildi blaðanna minnkar, en bæði stönglar og blaðslíður breytast fremur lítið að magni og gæðum. Á 3- mynd eru dregnar saman úr nokkrum tilraunum niðurstöður mælinga á meltan- leika blaða og stöngla af vallarfoxgrasi eftir þurrkun á velli. Er greint á milli góðrar verkunar og alllangs hraknings við þriggja daga legu heysins á velli. Myndin sýnir, að meltanleiki blaðanna minnkar fremur lítið með þroska, en hrakningurinn rýrir meltan- leikann þeim mun meira. Hið gagnstæða á sér stað í stönglunum; þar virðist hrakning- urinn hafa næsta lítil áhrif á meltanleikann, en áhrif þroskastigsins eru þeim mun aug- ljósari. Að þessum niðurstöðum fengnum og því, að hlutur blaðanna er minni en stöngl- anna og fer minnkandi með auknum þroska, má því álykta, að meltanleiki heys úr vallar- foxgrasi fari að mestu eftir þroskastigi grass- ins við slátt, með öðrum orðum, þætti sem stjórnandi heyskaparins hefur vald yfir. Yerð- ur vikið nánar að þessu síðar í ritgerðinni.

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.