Fréttablaðið - 16.12.2020, Side 1

Fréttablaðið - 16.12.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 6 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Allt frá smákökum til spariklæða ÖLL KVÖLD TIL JÓLA VIÐSKIPTI Hækkun langtímavaxta veldur því að íslenska ríkið er verr í stakk búið til að rétta úr kútnum en ella í samanburði við önnur vestræn ríki sem búa við betri vaxtakjör og sjá fram á hlutfallslega minni skulda- söfnun vegna kórónakreppunnar. „Aukning skulda leggst því þyngra á íslenska ríkið sem þarf meiri skatt- heimtu, niðurskurð eða hagvöxt til að grynnka á skuldum í framtíðinni,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræð- ingur Samtaka iðnaðarins. „Við þurfum að fara mjög varlega í þessu.“ Ef gert er ráð fyrir að skuldir ríkis- sjóðs 2025, um 65 prósent af lands- framleiðslu samkvæmt fjármála- áætlun, verði á þeim vöxtum sem ríkið fjármagnar sig á til tíu ára eins og staðan er í dag, um 3,3 prósent, þá verður vaxtabyrði ríkissjóðs 2,14 prósent af landsframleiðslu. Til samanburðar verður vaxta- byrði Grikklands um 0,98 prósent af landsframleiðslu en Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn gerir ráð fyrir að skuldahlutfall hins opinbera í Grikk- landi verði um 166 prósent 2025. Þar sem tíu ára vextir eru neikvæðir, svo sem í Svíþjóð, Danmörku og Finn- landi, verður vaxtabyrðin neikvæð. Anna Hrefna Ingimundardóttir, hagfræðingur SA, segir að aukin skuldsetning ríkissjóðs muni að öllum líkindum leiða til þess að hækka þurfi skatta til að standa undir óbreyttum útgjöldum. Ekki sé hægt að reiða sig á að hagvöxtur grynnki skuldir ríkissjóðs. „Það er óábyrgt að treysta á slíkan vöxt og hafa þarf hugfast að sögulega lágt vaxtastig endurspeglar einmitt dræmar hagvaxtarhorfur.“ Á sama tíma og hið opinbera stendur frammi fyrir gífurlegri láns- fjárþörf eru lífeyrissjóðir að minnka vægi ríkisskuldabréfa í eignasafni sínu. Guðrún Hafsteinsdóttir, for- maður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir sjóðina ekki geta „látið undan þrýstingi um að fjármagna ríkis- skuldir. Innan lífeyriskerfisins ríki skilningur á fjárþörf ríkisins en sjóð- irnir séu hins vegar ekki „hagstjórn- artæki sem ríkið gripur til þegar gefur á bátinn.“ – þfh / sjá Markaðinn Meiri vaxtabyrði vofir yfir ríkissjóði Íslenska hagkerfið þarf hærri skatta, meiri hagvöxt eða meiri niðurskurð en önnur samanburðarríki, sem þurfa einnig að skuld- setja sig vegna kórónakreppunnar. Vextir á ríkisskuldabréfum hafa farið hækkandi. Erlend lántaka ríkisins getur skipt sköpum. Í gærkvöldi var ákveðið að stækka rýmingarsvæðið á Seyðisfirði. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði í samtali við Fréttablaðið að tilkynningar um háværar drunur úr fjöllunum væru að berast. Hann segir ljóst að mörgum íbúum hafi verið brugðið. Fjöldahjálparstöð Rauða krossins var opnuð þar sem á fimmta tug höfðu farið í gegn. „Hótelið var opnað til að skjóta skjólshúsi yfir fólkið og svo hafa bæjarbúar einnig boðið fram aðstoð sína,” sagði Guðjón Sigurðsson, sjálf boðaliði Rauða Krossins. Sjá síðu 2 MYND/ÓMAR BOGASON Lífeyrissjóðirnir geta ekki látið undan þrýstingi um að fjármagna ríkisskuldir. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða LÍFIÐ „Þetta eru síðustu tökudag- arnir og það er allt að smella,“ segir Berglind Alda Ástþórsdóttir, sem ásamt Mikael Kaaber stýrir Krakka- skaupi RÚV sem sýnt verður 30. desember Þetta er í annað skipti sem þau stýra skaupinu og stóðu þau frammi fyrir því að pakka árinu 2020 í gleðibún- ing fyrir þau yngstu. – be / sjá síðu 24 Tökum að ljúka á Krakkaskaupi Þau Mikael og Berglind Alda. VIÐSKIPTI Gildi hefur farið þess á leit við fjármálaráðuneytið að reglur um yfirtökuskyldu verði teknar til end- urskoðunar. Þar verði horft til þess að taka upp endurtekna tilboðs- skyldu sem myndi stofnast þegar aðili ræður fyrst yfir 40 prósentum og síðan 50 prósentum. Telur Gildi, sem hefur þurft að taka afstöðu til yfirtökutilboðs í Eimskip og núna Skeljungs, að regl- urnar tryggi ekki nægjanlega réttar- vernd minnihluta hluthafa. „Yfirtökutilboðin hafa sýnt að hluthafar geti átt á hættu að læsast inni sem áhrifalitlir eigendur ef þeir samþykkja ekki það tilboð sem er sett fram þegar 30 prósenta þröskuldinum er náð,“ segir Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis. – hae / sjá Markaðinn Yfirtökuskyldu verði breytt 

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.