Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 8
J ónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur var svo sannarlega kona í
lit. Hún var oft umdeild því
að ekki lá hún á skoðunum
sínum eða valdi sér menn
sem lítið fór fyrir. Í viðtali í
október sló hún því upp í grín
að lífið með sér væri ekki auð-
velt. „Ég vel mér menn eins og
Jóhannes í Bónus og Gunnar í
Krossinum, það er ekki nema
von að Óttar Guðmundsson
geðlæknir spyrji hvort það sé
í lagi með mig,“ sagði Jónína
í viðtali við Sölva Tryggvason
í október.
Hún talaði um að hún leit-
aði í menn með stóra áru því
henni fyndust hinir leiðinleg-
ir. Þar er lýsir hún sjálfri sér
vel. Jónína sótti í áskoranir
og hugrekkið var ekki langt
undan.
Frumkvöðull
Jónína var fædd á Akur-
eyri 1957 og voru foreldrar
hennar Ásta Þorkelsdóttir
Ottesen (1928-1980) sjúkraliði
og Benedikt Ingvar Helgason
(1926-2012) tónlistarkennari.
Jónína flutti að heiman 14 ára
gömul og fór að leigja íbúð í
Hlíðunum með vinkonu sinni.
Hún fékk sér vinnu og spilaði
fótbolta með Val af miklum
krafti og æfði síðar handbolta
og sund.
Jónína lauk prófi í íþrótta-
fræði frá McGill University í
Kanada árið 1981 og stofnaði
í kjölfarið eina fyrstu líkams-
ræktarstöðina á Íslandi. Jón-
ína kom að stofnun fjölda lík-
amsræktarstöðva og má nefna
þá helst nefna World Class og
Planet Pulse auk þess sem hún
starfaði um tíma sem íþrótta-
kennari í skólum.
Ágústa Johnson, eigandi
Hreyfingar, og Jónína opn-
uðu svo saman stöðina Stúdíó
Ágústu og Jónínu árið 1986
sem naut mikilla vinsælda.
Ágústa sagði í viðtali við DV
nýlega að Jónína hefði kennt
sér mjög mikið á þessum
árum og það hefði verið mikil
gæfa að starfa með henni í
upphafi ferils síns.
Jónína flutti til Svíþjóðar
ásamt þáverandi eiginmanni
sínum Stefán Einar Matthías-
son lækni og börnum þeirra
þegar Stefán fór í doktors-
MYNDIR/ÚR SAFNI TORGS
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
HUGMYNDIR UM AÐ GERA KVIK-
MYND UM LÍTRÍKT LÍF JÓNÍNU
Jónína Benediktsdóttir lést á miðvikudaginn á heimili sínu í Hveragerði. Hún var
hörkudugleg viðskiptakona sem var óhrædd við að segja það sem í brjósti hennar bjó.
Stuttu fyrir andlát hennar kom upp hugmynd um að kvikmynda litríka ævi hennar.
nám. Þar stofnaði Jónína lík-
amsræktarstöð sem hún rak
í sjö ár. Hún stofnaði einnig
einkaþjálfaraskólann FIA sem
var sá eini sinnar tegundar í
Skandinavíu
Umræður um kvikmynd
Jónína hefur sagt frá því að
hún hafi skrifað bók sem leit
þó aldrei dagsins ljós sökum
þess hve viðkvæmt umfjöll-
unarefnið var að sögn Jónínu.
Hún var alla sína tíð í tengsl-
um við valdamikið fólk sem
var henni þó ekki alltaf í hag.
Jónína veitti almenningi
einstaka sýn inn í Baugsmálið
svokallaða sem hafði gríðar-
leg áhrif á íslenskt samfélag
og þar með hafði hún áhrif á
bæði viðskipti og stjórnmál í
landinu.
Sölvi Tryggvason skrifaði
metsölubók sem hét einfald-
lega Jónína og kom út árið
2010. Bókin seldist mjög vel
og komu í kjölfarið upp hug-
myndir um að kvikmynda
lífshlaup Jónínu. Ekki varð
úr því á þeim tíma en í kjölfar
viðtals við Jónínu hjá Sölva í
hlaðvarpi hans var aftur haft
samband við Jónínu vegna
möguleika á að kvikmynda
sögu hennar.
Heimildir herma að kvik-
myndin hafi átt að fjalla um
aðkomu hennar að bönkunum
í hruninu og stjórnmála-
mönnum, hvernig hún tókst á
við dómstóla auk sigra hennar
í viðskiptum og frumkvöðla-
starf en einnig ósigra í ásta-
málum.
Jónína var búsett síðustu
árin í Hveragerði þar sem hún
starfaði með eldri borgurum
við góðan orðstír og hélt vin-
sæl detoxnámskeið á Hótel
Örk.
Jónína lætur eftir sig þrjú
uppkomin börn, Jóhönnu
Klöru, Tómas Helga og
Matthías, sem eru öll börn
Stefáns Einars Matthíassonar,
og fjögur barnabörn. n
ERÓBIKK-
DÍVA
Jónína stofn
aði eina af
f yrs tu l í k
amsræktar
s t ö ð v u m
landsins.
63 ÁRA
Jónína varð
b r á ð k v ö d d
síðastliðinn
miðvikudag.
GLÆSILEG
Jónína var glæsileg kona og spar
aði ekki brosið.
FRUMKVÖÐULL
Strax á ungum aldri var Jónína
frumkvöðull í líkamsrækt og
kynnti Íslendinga fyrir detoxi.
UMDEILD
Jónína var umdeild og flestir virt
ust hafa skoðun á henni.
8 FRÉTTIR 18. DESEMBER 2020 DV