Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Side 11
legu upphandleggsvöðvana er með skýra sýn á hvað sé fyndið og að hverju megi gera grín. „Allt getur verið fyndið. En grín er auðvitað aðstæðu- bundið og mismunandi eftir því hver segir það en mér finnst fín regla þegar maður er að gera grín, að kýla upp á við. Gera grín að þeim sem hafa völdin og þá ætti fólkið sem stendur þeim næst að skilja grínið og hafa húmor fyrir því.“ Þú vilt væntanlega ekki heldur missa bitið úr gríninu? „Nei, en svo finnst fólki yfir- leitt það sem er satt vera beitt. Þannig að oft þegar maður er bara að segja satt virkar það svo beitt, þó þú sért bara að segja það sem allir vita og eru að hugsa.“ Meira í sleik Saga elskar sund og eru þau hjónin og hin tæplega þriggja ára hamingjusprengja Edda ekki óalgeng sjón í Vestur- bæjarlauginni en það var ein- mitt þar sem Saga sá eigin- mann sinn, Snorra Helgason tónlistarmann, fyrst. „Ég var búin að taka eftir Snorra áður og þá sérstaklega hvað hann var alltaf glaður. Ég var búin að dást að honum í svona hálft ár áður en nokkuð gerðist. Snorri er svo beinskeyttur. Það sló mig dálítið út af lag- inu hvað hann gekk hreint til verks. Það er venjulega ég sem geri það og ég varð eigin- lega bara feimin. Hann náði eiginlega bara í mig. Snorri var að vinna á skemmtistaðnum Húrra og hann bauð mér heim með sér eitt kvöldið og mér fannst það svo frakkt og dónalegt að ég svaraði: Nei, því miður, ég veit ekki hvað klukkan er! Ég þótt- ist bara hafa misskilið hann. Ég drakk ekki áfengi á þess- um tíma,“ segir Saga og hlær. „En ég fór nú samt heim með honum eftir að ég var búin að anda í bréfpoka,“ segir Saga og síðan eru liðin sex ár, Snorri og Saga orðin hjón og eiga dóttur og fallegt heimili í Vesturbænum. Þau hafa orð á sér fyrir að vera einstaklega samrýnd og sjást oftar en ekki saman – og ósjaldan að kyssast. „Ég segi að fólk eigi að fara meira í sleik! Ég man reyndar að við vorum ekki búin að vera lengi saman þegar frænka mín ávítaði mig fyrir að fara í sleik í einhverri skírn, sem henni fannst ekki vera í lagi. Ég bara tengdi ekki við það og skildi bara ekki hvernig það var óviðeigandi að fagna lífinu með sleik. Ég var ekkert að hugsa um að þetta væri óvið- eigandi – heldur bara mikið er þetta gott móment,“ segir Saga og hlær björtum hlátri. „Þetta var líka maðurinn minn, ekki bara einhver maður í skírn. Það hefði verið skrítið.“ Tveggja tíma rembingur Eftir nokkur ár af innilegum sleikjum varð Saga ólétt að Eddu sem verður þriggja ára í febrúar. Saga lýsti á opinská- an hátt í pistli á Kjarnanum hversu erfitt það er að koma manneskju í heiminn. Með pistlinum deildi hún mynd af blóðsprungnum augum og andliti sínu sem leit frekar út fyrir að hafa lent í átökum í húsasundi en mesta krafta- verki lífsins. „Það að fæða barn er full- komlega hræðilega erfitt,“ segir Saga sem hélt að hún væri vel undirbúin undir átökin enda í góðu formi og vön mikilli áreynslu. Í pistl- inum góða lýsir hún aðdrag- Oft þegar maður er bara að segja satt virkar það svo beitt, þó þú sért bara að segja það sem allir vita og eru að hugsa. FRÉTTIR 11DV 18. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.