Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Side 14
14 FRÉTTIR
Leigubílstjóri
var myrtur í
Reykjavík í
janúar 1968.
Hreyfill hét
100.000
krónum þeim
er gætu veitt
upplýsingar.
MYND/ÚR SAFNI
A lvarlegir ofbeldisglæpir eru sem betur fer ekki algengir á Íslandi, og
þó að það sé lítil huggun fyrir
brotaþolana sem þá þó upp-
lifa, eru handahófskennd of-
beldisverk enn fátíðari. Vegna
tengsla milli brotaþola og ger-
anda í slíkum málum eru þau
líka oftast nokkuð auðleyst.
Þar leikur vafalaust einn-
ig hlutverk sú mikla og góða
þekking sem íslensk lögregla
hefur úr að spila og smæð ís-
lensks samfélags.
Þó eru þess dæmi að mál
koma upp hér á landi sem
aldrei eru leyst. Morð, inn-
brot, bankarán. DV skoðar
hér nokkur af helstu óleystu
morðmálum Íslandssögunnar.
Gunnar Sigurður
Tryggvason
Á nöprum janúarmorgni árið
1968 voru tveir Reykvíkingar
á ferli um Laugalæk er þeir
sáu kyrrstæðan leigubíl. Bif-
reiðin var í gangi sem vakti
athygli þeirra enda bifreiðin
að öðru leyti hreyfingarlaus.
Vegfarendurnir sáu að ekki
væri allt með felldu. Það
reyndist rétt, því bak við stýr-
ið sat leigubílstjórinn Gunn-
ar Tryggvason. Gunnar hafði
verið skotinn í höfuðið og var
látinn í bíl sínum. Gjaldmælir
leigubílsins var enn í gangi og
gat lögregla því áætlað dánar-
tíma í kringum sex að morgni.
Rétt rúmum klukkutíma áður
en lík Gunnars fannst.
Rannsókn lögreglu skilaði
í fyrstu afar litlu. Athygli
rannsakanda beindist einna
helst að skotvopninu. Skot-
hylkið úr vopninu fannst á
vettvangi, en byssan ekki
þrátt fyrir mikla leit. Grunur
um að vopninu hefði verið
stolið af heimili fyrrverandi
hótelstjóra Hótel Borgar vakti
enn fremur athygli og óhug á
þeim tíma. Þegar ljóst varð að
rannsóknin var ekki að skila
árangri bauð Hreyfill, vinnu-
staður mannsins, eitt hundrað
þúsund krónur í skiptum fyrir
upplýsingar sem gætu komið
lögreglu á sporið. Hundrað
þúsund krónur þóttu mjög
vegleg verðlaun fyrir rúmri
hálfri öld og fáa munaði ekki
um slíka búbót. Engu að síður
breytti það engu.
Það var ekki fyrr en ári
síðar að byssan loks fannst
á gólfi leigubíls sem keyptur
hafði verið á skuldauppboði.
Þegar staðfest var að byssan
væri í raun sú sem notuð var
við morðið á Gunnari beindist
athygli lögreglu strax að fyrr-
verandi eiganda leigubílsins.
Við húsleit á heimili manns-
ins fundust tvær byssukúlur
í byssuna og á lyklakippu
mannsins fundust lyklar að
heimili eiganda byssunnar,
hótelstjórans fyrrverandi.
Framburður mannsins tók
enn fremur talsverðum
breytingum eftir því sem leið
á ellefu mánaða langa gæslu-
varðhaldsvist hans. Síðasta
saga hans var sú að hann hefði
verið í sumarbústað með hót-
elstjóranum sem hefði fengið
hann til að gera við sjónvarpið
sitt. Við það tækifæri hefði
hann stolið byssunni.
Að endingu var maðurinn
sýknaður í klofnum héraðs-
dómi þar sem einn dómari
vildi sakfella en aðrir ekki.
Hæstiréttur klofnaði svo aft-
ur þegar hann staðfesti dóm
héraðsdóms. Ef kolleginn á
Hreyfli drap Gunnar ekki, þá
er ljóst að morðinginn gengur
enn laus. Lögregla opnaði
rannsóknina aftur árið 2018
í kjölfar nýrra upplýsinga
frá Sigursteini Mássyni sem
komu fram í þætti hans, Sönn
íslensk sakamál. Enginn hef-
ur enn verið sakfelldur fyrir
morðið á Gunnari.
Rán í Vesturbænum
Tvö nokkuð keimlík rán skóku
Reykjavík árið 1995. Í því
fyrra var ráðist að tveimur
konum er þær voru á leið með
uppgjörið úr Skeljungi í bank-
ann. Þrír menn voru að verki.
Síðar það sama ár réðust þrír
vopnaðir menn inn í Bún-
aðarbankann á Vesturgötu og
höfðu þeir nokkuð háa fjárhæð
upp úr krafsinu. Lengi var tal-
ið að málin væru tengd, enda
keimlík. Árið 2003 ljóstraði
þó fyrrverandi kærasta eins
Skeljungsræningjans upp um
gamla kærastann sinn og við
rannsókn á því kom á daginn
að málin væru ótengd. Kær-
asti konunnar var sakfelldur
fyrir Skeljungsránið og telst
það upplýst. Ræningjar Bún-
aðarbankaútibúsins á Vestur-
götu ganga þó enn lausir.
Bankarán á Austfjörðum
Vafalaust eitt bíræfnasta
bankarán sögunnar átti sér
stað á Borgarfirði eystri versl-
unarmannahelgina árið 1991.
Sparkaði maður þá hurð upp
sem aðskildi fiskvinnslu og
útibú Landsbankans þar í bæ.
Að því loknu gaf þjófurinn sér
góðan tíma í að brjóta upp 200
kílóa peningaskáp og allan
tímann fór fram fjölmenn
skemmtun í næsta húsi. Ránið
skók litla og þéttofna sam-
félagið á Borgarfirði eystri,
en er enn í dag óupplýst.
Old Spice-ræninginn
Í febrúar árið 1979 rudd-
ist ræningi inn í afgreiðslu
Pósts og síma í Sandgerði og
krafðist þess að fá peninga af-
henta. Hafði ræninginn hálfa
milljón upp úr krafsinu. Eina
vísbendingin sem ræninginn
virðist hafa skilið eftir var
megn Old Spice-lykt sem af-
greiðslukonan í afgreiðsl-
unni sagði að hafði legið af
manninum. Um ári síðar
virðist þessi sami maður, Old
Spice-ræninginn sjálfur, hafa
endurtekið leikinn. Rændi
hann þá aftur þessa sömu af-
greiðslu og aftur hafði hann
um hálfa milljón upp úr
krafsinu. Old Spice-anganin
var enn fremur, aftur, eina
vísbendingin. Grunur lög-
reglu á þessum tíma beindist
að ákveðnum manni en aðild
hans gat lögregla aldrei sann-
að. Old Spice-ránin svokölluðu
eru því í dag enn óupplýst.
Jólamorð í Reykjavík
Annan dag jóla árið 1945 fann
ungur maður í Reykjavík illa
leikið lík Kristjáns Guðjóns-
sonar í Kveldúlfsportinu, ná-
lægt þar sem Seðlabankinn
er í dag. Kristján hafði verið
laminn ítrekað með barefli í
höfuðið og lík hans skilið eftir
þar sem það lá. Nokkur fjöldi
breskra og bandarískra her-
manna var enn í Reykjavík
þegar morðið átti sér stað,
þó að seinna stríði hafi þarna
verið lokið. Í kjölfar lýsinga
vitnis á manni „dökkum yfir-
litum“ sem vitnið hafði séð
á ferli á svæðinu í nágrenni
Kveldúlfsportsins þetta kvöld
beindist grunur lögreglu að
þeim hermönnum sem svartir
voru á hörund.
Rannsókn lögreglu skilaði
þó afar litlu, og er morðið á
Kristjáni Guðjónssyni elsta
óupplýsta morðmál Íslands. n
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
ÓLEYST SAKAMÁL Á ÍSLANDI
Óupplýst sakamál á Íslandi eru mun fleiri en ætla mætti út frá smæð landsins. Virðast
bankaræningjar tróna þar á toppnum þótt óhugguleg morðmál séu einnig þar á meðal.
18. DESEMBER 2020 DV
Grunur um að
vopninu hefði
verið stolið af
heimili fyrrver-
andi hótelstjóra
Hótel Borgar
vakti enn fremur
athygli og óhug á
þeim tíma.