Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR Leigubílstjóri var myrtur í Reykjavík í janúar 1968. Hreyfill hét 100.000 krónum þeim er gætu veitt upplýsingar. MYND/ÚR SAFNI A lvarlegir ofbeldisglæpir eru sem betur fer ekki algengir á Íslandi, og þó að það sé lítil huggun fyrir brotaþolana sem þá þó upp- lifa, eru handahófskennd of- beldisverk enn fátíðari. Vegna tengsla milli brotaþola og ger- anda í slíkum málum eru þau líka oftast nokkuð auðleyst. Þar leikur vafalaust einn- ig hlutverk sú mikla og góða þekking sem íslensk lögregla hefur úr að spila og smæð ís- lensks samfélags. Þó eru þess dæmi að mál koma upp hér á landi sem aldrei eru leyst. Morð, inn- brot, bankarán. DV skoðar hér nokkur af helstu óleystu morðmálum Íslandssögunnar. Gunnar Sigurður Tryggvason Á nöprum janúarmorgni árið 1968 voru tveir Reykvíkingar á ferli um Laugalæk er þeir sáu kyrrstæðan leigubíl. Bif- reiðin var í gangi sem vakti athygli þeirra enda bifreiðin að öðru leyti hreyfingarlaus. Vegfarendurnir sáu að ekki væri allt með felldu. Það reyndist rétt, því bak við stýr- ið sat leigubílstjórinn Gunn- ar Tryggvason. Gunnar hafði verið skotinn í höfuðið og var látinn í bíl sínum. Gjaldmælir leigubílsins var enn í gangi og gat lögregla því áætlað dánar- tíma í kringum sex að morgni. Rétt rúmum klukkutíma áður en lík Gunnars fannst. Rannsókn lögreglu skilaði í fyrstu afar litlu. Athygli rannsakanda beindist einna helst að skotvopninu. Skot- hylkið úr vopninu fannst á vettvangi, en byssan ekki þrátt fyrir mikla leit. Grunur um að vopninu hefði verið stolið af heimili fyrrverandi hótelstjóra Hótel Borgar vakti enn fremur athygli og óhug á þeim tíma. Þegar ljóst varð að rannsóknin var ekki að skila árangri bauð Hreyfill, vinnu- staður mannsins, eitt hundrað þúsund krónur í skiptum fyrir upplýsingar sem gætu komið lögreglu á sporið. Hundrað þúsund krónur þóttu mjög vegleg verðlaun fyrir rúmri hálfri öld og fáa munaði ekki um slíka búbót. Engu að síður breytti það engu. Það var ekki fyrr en ári síðar að byssan loks fannst á gólfi leigubíls sem keyptur hafði verið á skuldauppboði. Þegar staðfest var að byssan væri í raun sú sem notuð var við morðið á Gunnari beindist athygli lögreglu strax að fyrr- verandi eiganda leigubílsins. Við húsleit á heimili manns- ins fundust tvær byssukúlur í byssuna og á lyklakippu mannsins fundust lyklar að heimili eiganda byssunnar, hótelstjórans fyrrverandi. Framburður mannsins tók enn fremur talsverðum breytingum eftir því sem leið á ellefu mánaða langa gæslu- varðhaldsvist hans. Síðasta saga hans var sú að hann hefði verið í sumarbústað með hót- elstjóranum sem hefði fengið hann til að gera við sjónvarpið sitt. Við það tækifæri hefði hann stolið byssunni. Að endingu var maðurinn sýknaður í klofnum héraðs- dómi þar sem einn dómari vildi sakfella en aðrir ekki. Hæstiréttur klofnaði svo aft- ur þegar hann staðfesti dóm héraðsdóms. Ef kolleginn á Hreyfli drap Gunnar ekki, þá er ljóst að morðinginn gengur enn laus. Lögregla opnaði rannsóknina aftur árið 2018 í kjölfar nýrra upplýsinga frá Sigursteini Mássyni sem komu fram í þætti hans, Sönn íslensk sakamál. Enginn hef- ur enn verið sakfelldur fyrir morðið á Gunnari. Rán í Vesturbænum Tvö nokkuð keimlík rán skóku Reykjavík árið 1995. Í því fyrra var ráðist að tveimur konum er þær voru á leið með uppgjörið úr Skeljungi í bank- ann. Þrír menn voru að verki. Síðar það sama ár réðust þrír vopnaðir menn inn í Bún- aðarbankann á Vesturgötu og höfðu þeir nokkuð háa fjárhæð upp úr krafsinu. Lengi var tal- ið að málin væru tengd, enda keimlík. Árið 2003 ljóstraði þó fyrrverandi kærasta eins Skeljungsræningjans upp um gamla kærastann sinn og við rannsókn á því kom á daginn að málin væru ótengd. Kær- asti konunnar var sakfelldur fyrir Skeljungsránið og telst það upplýst. Ræningjar Bún- aðarbankaútibúsins á Vestur- götu ganga þó enn lausir. Bankarán á Austfjörðum Vafalaust eitt bíræfnasta bankarán sögunnar átti sér stað á Borgarfirði eystri versl- unarmannahelgina árið 1991. Sparkaði maður þá hurð upp sem aðskildi fiskvinnslu og útibú Landsbankans þar í bæ. Að því loknu gaf þjófurinn sér góðan tíma í að brjóta upp 200 kílóa peningaskáp og allan tímann fór fram fjölmenn skemmtun í næsta húsi. Ránið skók litla og þéttofna sam- félagið á Borgarfirði eystri, en er enn í dag óupplýst. Old Spice-ræninginn Í febrúar árið 1979 rudd- ist ræningi inn í afgreiðslu Pósts og síma í Sandgerði og krafðist þess að fá peninga af- henta. Hafði ræninginn hálfa milljón upp úr krafsinu. Eina vísbendingin sem ræninginn virðist hafa skilið eftir var megn Old Spice-lykt sem af- greiðslukonan í afgreiðsl- unni sagði að hafði legið af manninum. Um ári síðar virðist þessi sami maður, Old Spice-ræninginn sjálfur, hafa endurtekið leikinn. Rændi hann þá aftur þessa sömu af- greiðslu og aftur hafði hann um hálfa milljón upp úr krafsinu. Old Spice-anganin var enn fremur, aftur, eina vísbendingin. Grunur lög- reglu á þessum tíma beindist að ákveðnum manni en aðild hans gat lögregla aldrei sann- að. Old Spice-ránin svokölluðu eru því í dag enn óupplýst. Jólamorð í Reykjavík Annan dag jóla árið 1945 fann ungur maður í Reykjavík illa leikið lík Kristjáns Guðjóns- sonar í Kveldúlfsportinu, ná- lægt þar sem Seðlabankinn er í dag. Kristján hafði verið laminn ítrekað með barefli í höfuðið og lík hans skilið eftir þar sem það lá. Nokkur fjöldi breskra og bandarískra her- manna var enn í Reykjavík þegar morðið átti sér stað, þó að seinna stríði hafi þarna verið lokið. Í kjölfar lýsinga vitnis á manni „dökkum yfir- litum“ sem vitnið hafði séð á ferli á svæðinu í nágrenni Kveldúlfsportsins þetta kvöld beindist grunur lögreglu að þeim hermönnum sem svartir voru á hörund. Rannsókn lögreglu skilaði þó afar litlu, og er morðið á Kristjáni Guðjónssyni elsta óupplýsta morðmál Íslands. n Heimir Hannesson heimir@dv.is ÓLEYST SAKAMÁL Á ÍSLANDI Óupplýst sakamál á Íslandi eru mun fleiri en ætla mætti út frá smæð landsins. Virðast bankaræningjar tróna þar á toppnum þótt óhugguleg morðmál séu einnig þar á meðal. 18. DESEMBER 2020 DV Grunur um að vopninu hefði verið stolið af heimili fyrrver- andi hótelstjóra Hótel Borgar vakti enn fremur athygli og óhug á þeim tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.