Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 23
Aukið álag á
konum á heimilunum
Konur standa þriðju vaktina þegar kemur að skipulagi heimilislífsins.
Aukið andlegt álag á konum á tímum COVID-19 kom glöggt í ljós
hjá þátttakendum í nýrri rannsókn sem gerð var í fyrstu bylgjunni.
Nýjar og yfirstandandi rannsóknir benda til þess að COVID-19 hafi
önnur áhrif á líf mæðra en
feðra, það hafi aukið sýnileika
kynbundinnar verkaskipting-
ar og aukið enn á ólaunaða
vinnu kvenna.
Gjarnan er talað um þriðju
vaktina yfir þá andlegu byrði
sem felst í að sinna ýmsu
skipulagi sem tengist heimilis-
lífinu. Þessi andlega vinna er
mun óáþreifanlegri en önnur
vinna og gleymist oft þegar
rætt er um verkaskiptingu á
heimilinu. Niðurstöður rann-
sókna hafa sýnt að þriðja
vaktin fellur iðulega konum á
heimilinu í skaut.
Útivinnandi konur fara
gjarnan á aðra vaktina þegar
heim er komið, sinna börnum,
þrifum og hefðbundnu heimil-
ishaldi. Þriðja vaktin snýst að
miklu leyti um skipulag, svo
sem að skipuleggja barnaaf-
mæli, sinna stórfjölskyldunni
og skipuleggja félagslíf fjöl-
skyldumeðlima. Oft er talað
um að þriðja vaktin snúi að
framkvæmdastjórn heimilis-
ins, að reka heimilið eins og
það sé fyrirtæki.
Skrifuðu dagbókarfærslur
Í fyrstu bylgju COVID-19
gerðu fræðikonurnar Andrea
Hjálmsdóttir og Valgerður S.
Bjarnadóttir rannsókn á áhrif-
um faraldursins á heimilislíf,
heimilisstörf og barnauppeldi.
Andrea er félagsfræðingur og
lektor við hug- og félagsvís-
indasvið Háskólans á Akur-
eyri og Valgerður er mennt-
unarfræðingur og nýdoktor
við hug- og félagsvísindasvið
Háskólans á Akureyri.
Ljóst var að skerðingar á
leik- og grunnskólastarfi, lok-
anir framhaldsskóla, háskóla
og vinnustaða, auk breytinga
á ýmiss konar þjónustu og
starfsöryggi fólks hefðu víð-
tæk áhrif á daglegt líf fólks
og því fylgdu talsverðar
breytingar á heimilislífi og
hlutverkum fólks.
Um var að ræða svokall-
aða dagbókarfærslurannsókn
þar sem þátttakendur skrif-
uðu daglega í tvær vikur um
verkefni sín, svo sem tengd
heimilisstörfum, heimavinnu
barna og skipulagningu
íþróttastarfs, og svo opnar
hugleiðingar. Sjálfvalið úr-
tak 47 manns tók þátt, konur
voru í miklum meirihluta en
sérstaklega var óskað eftir
barnafólki. Þær kynntu niður-
stöðurnar í Þjóðarspegli HA
í október auk þess sem þær
hafa verið birtar í alþjóðlega
vísindatímaritinu Cambio þar
sem fjallað er um samfélags-
legar breytingar.
Opinberaðist í kófinu
Andrea segir að þær Val-
gerður dragi þá ályktun að
verkaskiptingin á heimilunum
hafi ekki breyst á tímum CO-
VID-19 heldur hafi það opin-
berast fyrir fólki hversu aukið
andlegt álag væri á konum
Fjölmörg störf færðust inn á heimilið á tímum COVID-19 og lenti á konum að sinna þeim. MYND/GETTY
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
sakað sérstaklega verka-
skiptingu á heimilum tengda
jólum en segist vita af öðrum
rannsóknum þar sem þriðja
vaktin er bersýnileg í kring
um jólin. „Mitt mat er að jólin
séu álagstími hvað þriðju
vaktina varðar. Það hefur al-
mennt lítið gengið að deila
þeim verkefnum sem krefjast
mikillar skipulagningar, svo
sem allt umstang í kring um
jól og afmæli.“ n
Andrea
Hjálmsdóttir
félagsfræðingur
og lektor við hug-
og félagsvísinda-
svið HA
BROT ÚR DAGBÓKARFÆRSLUM
ÞÁTTTAKENDA
Erfiður dagur í dag þar sem dótt-
irin grét af söknuði eftir vinkonum.
Nám sat því á hakanum og dagur-
inn fór mikið til í að sinna börnum
andlega. (Börn 5 og 8 ára).
Ég nenni ekki þessu ástandi en
reyni að vera jákvæð, sérstaklega
við manninn og börnin, þau mega
alls ekki átta sig á kvíðanum, þá
verða þau óþarflega hrædd. (Börn
9 og 10 ára).
Ég meika ekki þetta ástand lengur
og þarf frí... ekki frí frá þvotti og
heimilisstörfum í nokkrar klst...
heldur frí frá að bera ábyrgð á allri
ákvarðanatöku. ( Börn 2 og 7 ára).
Ég varð þreytt í dag og ávítaði
eiginmanninn. Ég sé um verk-
stjórn, verkaskiptingu og tek
mesta ábyrgð á námi og æfingum
barnanna. Mér finnst við vera
hættulega nálægt kynjaþróun
eins og hún var fyrir miðja síðustu
öld. Þá er það á minni ábyrgð að
minna á að svo eigi ekki að vera
og enn bætist þá í ábyrgðarpakk-
ann. (Börn 6, 8 og 13 ára).
inni á heimilunum, og vísar
hún þá til fólks í gagnkyn-
hneigðum parasamböndum.
Hún segir áhugavert hversu
mikið álag fylgi því að halda
utan um allt heimilislífið. „Í
fyrstu bylgjunni komu mörg
störf inn á heimilið sem áður
hafði verið útvistað, svo sem
skólavistun, mötuneyti og
annað slíkt. Það kom mörgum
konum á óvart hvað mikið af
þessari vinnu lenti á þeirra
herðum. Það verður síðan yfir-
þyrmandi þegar öll verkefnin
eru komin inn á heimilið, með
tilheyrandi streitu,“ segir hún.
Jólin líka álagstími
„Við virðumst telja okkur trú
um að af því að Ísland stendur
sig vel í jafnréttismálum þá
séum við framarlega á öllum
sviðum jafnréttis en heimilin
hafa hreinlega setið eftir. Ég
held að það komi mörgum á
óvart hvað við erum enn langt
á eftir hvað það varðar,“ segir
Andrea.
Þriðja vaktin felur í sér ým-
iss konar hugræna byrði (e.
mental load) og tilfinninga-
vinnu (e. emotional labour).
„Það er hluti af vinnunni að
reyna að halda öllum á heim-
ilinu góðum og mæður passa
upp á að það sjáist ekki að þær
séu stressaðar,“ segir hún.
Andrea hefur ekki rann-
Það kom
mörgum
konum á
óvart hvað
mikið af
þessari vinnu
lenti á þeirra
herðum.
FÓKUS 23DV 18. DESEMBER 2020