Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 34
34 FÓKUS 18. DESEMBER 2020 DV
SÍSKRIFANDI
FRÁ BARNÆSKU
Sigríður Hagalín orti fram undir tvítugt en var
alltaf óánægð með afraksturinn og ákvað að
fara í blaðamennsku í staðinn. Hún var að
gefa út sína þriðju skáldsögu.
Náttúruvá á Íslandi
eftir Júlíus Sólnes, Freystein Sig-
mundsson og Bjarna Bessason
Útgáfuár: 2013
Fræðirit fyrir almenning þar sem
helstu sérfræðingar landsins fjalla
um eldgos og jarðskjálfta. Bæði
er greint frá eðli þessara nátt-
úrufyrirbæra og þeirri vá sem af
þeim stafar. Sagt er frá nýjustu
rannsóknum í jarðvísindum og
jarðskjálftafræði sem tengjast
Íslandi. Um sextíu höfundar hafa
lagt til efni í bókina, og í henni eru
nærri 1000 ljósmyndir, teikningar
og skýringamyndir.
Kona franska lautinantsins
eftir John Fowles
Útgáfuár: 1981
Skáldsaga um ástarsamband
þeirra Charles Smithson og Sö-
ruh Woodruff. Fowles er reyndur
í viktorískum bókmenntum og hér
bæði skrifar hann í þeim anda og
gagnrýnir margar hefðbundnar
períódur. Sumir hafa kallað bókina
femíníska en Sarah er frjálsari og
sjálfstæðari en aðrar kvenper-
sónur.
Stórleikararnir Meryl Streep og
Jeremy Irons léku aðalhlutverk í
bíómynd eftir verkinu.
Rigning í nóvember
eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Útgáfuár: 2004
Kona fer austur á land eftir að
maðurinn hennar yfirgefur hana
vegna annarrar konu. Með í för
er fimm ára heyrnarlaus sonur
vinkonu hennar, en tilgangur
ferðarinnar er að finna stað fyrir
sumarbústað sem hún hefur unnið
í happdrætti.
Smásögur Jorge Luis Borges
Borges var argentínskur rithöf-
undur, skáld og þýðandi. Hann er
þekktastur fyrir smásögur sínar og
ljóð. Á efri árum kom hann nokkrum
sinnum til Íslands. Hann lærði ís-
lensku upp á eigin spýtur og þýddi
Gylfaginningu Snorra Sturlusonar á
spænsku í samstarfi við konu sína,
Maríu Kodama. Á legsteini hans
stendur: Hann tekur sverðið Gram
og leggur í meðal þeirra bert, sem
er úr Völsunga sögu.
Oryx and Crake
eftir Margaret Atwood
Útgáfuár: 2003
Ástarsaga en einnig dystópísk
framtíðarsaga þar sem Snowman,
þekktur undir nafninu Jimmy áður
en plágan herjaði á allt mann-
kynið, reynir að fóta sig í veröld
þar sem hann er mögulega síðasti
fulltrúi mannkyns á jörðu. Við
fylgjum honum í sorg eftir missi
besta vinar hans, Crake, og hinni
fallegu Oryx sem þeir elskuðu
báðir. Aðdáendur Atwood verða
ekki sviknir.
S igríður Hagalín, fjöl-miðlakona og rithöf-undur, hefur verið sí-
skrifandi frá því hún var
barn og hefur skrifað ljóð,
sögur og leikrit. „Ég orti fram
undir tvítugt, en var alltaf
óánægð með afraksturinn
og ákvað að leggja fyrir mig
blaðamennsku í staðinn. Svo
skrifaði ég fréttir og greinar
í næstum tvo áratugi áður en
ég lét undan gamalli hugmynd
og prófaði að skrifa skáld-
sögu, aðallega til að sjá hvort
ég gæti það. Þannig varð Ey-
land til árið 2016, og nú er
þriðja skáldsagan mín komin
út,“ segir Sigríður en nýjasta
bókin hennar heitir Eldarnir.
Fyrsta bókin sem hún las
var Ævintýraeyjan. „Fyrsta
alvörubókin sem ég las, með
fleiri stöfum en myndum, var
Ævintýraeyjan. Foreldrar
mínir gáfu mér hana þegar ég
var fimm ára og lasin heima,
og ég man eftir nautninni að
lesa svona þykka og skemmti-
lega bók, að eiga svona mikið
eftir af henni.
Allra best finnst Sigríði
að lesa í sófanum sínum og í
rúminu, með góðan tebolla.
Fallegasta bókarkápa sem
hún man eftir er gamalt ein-
tak af Ódysseifskviðu sem
pabbi hennar lét binda inn
í kirsuberjarautt leður með
gyllingum á kilinum. „Það
er fallegasta bók sem ég hef
séð,“ segir hún.
Sigríður segir hér frá fimm
uppáhaldsbókunum sínum. n
Umsögn: „Æðislegur doðrantur
um eldgos, eldfjöll og jarðskjálfta
á Íslandi, ég studdist að mestu
leyti við hana þegar ég skrifaði
Eldana, og finnst að hún ætti að
vera til á hverju einasta heimili á
Íslandi.“
Umsögn: „Skáldsaga um ástir og
örlög á Viktoríutímabilinu í Bret-
landi, skrifuð með póstmódern-
ískt blik í auga – undursamlegur
lestur.“
Umsögn: „Fyrsta skáldsagan sem
ég las eftir Auði Övu, hún fékk mig
til að falla í stafi, fegursta road-
trip í heimi.“
Umsögn: „Hvar sem í þær næst,
hver saga er lítill, fullkominn, fram-
andi heimur sem er dásamlegt að
týna sér í. “
Umsögn: „Ein af mörgum uppá-
haldsbókum eftir þennan frá-
bæra höfund, heimspekilegur
framtíðartryllir um umhverfisáhrif
mannsins og heimsfaraldra.“
Sigríði Hagalín finnst best að lesa í sófanum eða uppi í rúmi með góðan tebolla. MYND/VALLI
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is