Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 37
K æra Kristín. Mér þyk-ir vandræðalegt að skrifa þetta en ég hef á síðustu mánuðum þróað tilfinningar til mágs míns. Við höfum raunar ekki hist mjög mikið síðustu mánuði en systir mín og hann eru hluti af jólakúlunni okkar sem verður saman yfir há- tíðirnar. Ég er því farin að kvíða þessum stundum þar sem mér líður hálf óþægilega nálægt honum, og þá auð- vitað systur minni líka. Ég er nokkuð viss um að hann veit ekki að ég hef hugsað um hann á ástríðufullan hátt og að sjálfsögðu vil ég ekki koma upp á milli þeirra hjóna. Tek fram að ég er ein- hleyp. Hvernig er hægt að eiga við svona tilfinningar? Hugsun og gjörðir ekki það sama Sæl. Takk fyrir spurning- una. Hún endurspeglar ein- mitt nokkuð sem fólk er ekki mikið að bera á borð en flest- ir fá stundum hugsanir sem þeir kjósa að deila ekki með öðrum. Það er fullkomlega eðlilegt, en svo eru það við- brögðin sem geta verið mis- jöfn og varhugaverð. Sem dæmi má nefna að margir fá hugmyndir um framhjáhald en það þýðir ekki að allir ætli að halda framhjá. Sumir eru með kynferðislegar fantasíur sem þeir gera ekki að veru- leika og fólk getur fundið fyr- ir ástríðu án þess að fremja nokkurn verknað. Hér getum við kafað ansi djúpt og velt því fyrir okkur á heimspekilegum nótum hvað ást raunverulega er. Fræði- menn hafa reynt að svara þeirri spurningu með mis- gáfulegum árangri í margar aldir og því ólíklegt að niður- staða fáist í það mál hér og nú, í þessu samhengi. Aftur á móti getur þú nýtt þér þá staðreynd sem innblástur í tengslum við hvaða tilfinn- ingar þú í raun og veru ert að fást við. Getur þú verið viss um að þetta sé ást? Hvað ger- ist ef þú bregst við þessum tilfinningum? Er það áhætta sem þú ert tilbúin að taka? Ást er ákvörðun Ég segi stundum að helstu mistökin sem fólk geri í ást- armálum sé að halda að það sé ástfangið þegar það finnur fyrir spennu. Við þurfum að vinna rannsóknarvinnu, prófa okkur áfram og máta, ef við ætlum að vera viss um að hér sé um mögulegt maka- efni að ræða. Þó að þú finnir fyrir sterkum tilfinningum til mágs þíns gætu þær end- urspeglað margt annað, til dæmis aðdáun, afbrýðisemi, væntumþykju eða vináttu. Þá er ástin líka ákvörðun, sem þýðir að þó að þú finnir fyrir sterkum tilfinningum getur þú ákveðið hvort þú nærir þær eður ei. Þú getur ákveðið hvort þú bregðist við með því að reyna við mág þinn eða með því að sam- gleðjast systur þinni yfir að eiga góðan mann. Þú nefnir að þú hafir verið að forðast þau og kvíðir fyrir að hitta þau og mögulega er það þín leið til þess að leyfa tilfinn- ingum þínum að hjaðna. Okkur hættir öllum til að skýra líðan okkar með að- stæðum. Aftur á móti breyt- um við ekki aðstæðum svo glatt. Eini möguleikinn er að breyta viðhorfi og hugs- unum. Þar hefur þú ákveðna stjórn og þú getur þjálfað þig í að stýra þeim betur en þig kannski grunar. Taktu upplýst val Í þeim aðstæðum sem þú ert í núna getur þú sett fókusinn á hugsanir þínar. Þær eru bæði ósjálfráðar og sjálfráðar. Þessar ósjálfráðu eru mögu- lega ástríðufullar gagnvart mági þínum, en hvert getur þú valið að beina þeim í hvert skipti sem þær skjótast upp í kollinn þinn? Getur þú fyrir- fram verið búin að ákveða hvað þú ætlar að hugsa um í staðinn? Beint hugsunum þín- um að systur þinni? Að öðrum myndarlegum mönnum sem þér hafa þótt álitlegir? Nú eða einhverju allt öðru, til dæmis áhugamálum eða síðustu kvikmynd sem þú sást? Þegar kemur að ástríðu hættir fólki til að líta á sig sem viljalaust verkfæri í að- stæðum sem það hefur ekki stjórn á, en þú ert voldugri en þú heldur. Taktu upplýst val um hvert þú stefnir með þessi mál. Mögulega gæti aðstoð eða ráðgjöf frá þriðja aðila komið sér vel fyrir þig en ég er viss um að þú getir fundið afar farsæla lausn á þessu máli án þess að særa neinn. Gangi þér sem allra best. n FÓKUS 37DV 18. DESEMBER 2020 Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem upplifir óþægilegar tilfinningar í garð mágs síns. ÉG ER ÁSTFANGIN AF MÁGI MÍNUM Sérfræðingur svarar MYND/GETTY Þá er ástin líka ákvörðun, sem þýðir að þó að þú finnir fyrir sterkum tilfinningum getur þú ákveðið hvort þú nærir þær eður ei.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.