Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 41
KYNNING 41DV 18. SEPTEMBER 2020
K ombucha er gerjaður te-drykkur sem kemur líklega upphaflega frá Asíu til forna.
Gerjunin á sér stað með hjálp svo-
kallaðs „scoby“ - „Symbiotic Colony
of Bacteria and Yeast) og úr verður
sætsúr gosdrykkur með heillandi
eftirbragði. „Kombucha er ekki eitt-
hvað sem fólk verður ástfangið af
við fyrsta sopa heldur þarf aðeins
að venjast bragðinu. Ég kynntist
„boochinu“ fyrst fyrir þó nokkrum
árum síðan þegar einhver í kringum
mig var að drekka það. Ég man bara
að mér fannst lyktin af þessu rosa-
lega erfið. Það var svo ekki fyrr en í
byrjun þessa árs þegar ég var á tón-
leikaferðalagi með Une Misère um
Evrópu, sem ég kynntist kombucha
aftur. Þá var einhver söngvari í ann-
arri hljómsveit í ferðalaginu sem
var alltaf með kombucha á sér og
mér fannst það eitthvað svo tilkomu-
mikið. Um leið og við lentum í Kefla-
vík fór ég út í næstu matvörubúð
og keypti mér flösku frá Kombucha
Iceland og hefur þessi drykkur fylgt
mér síðan,“ segir Jón.
Algert sælgæti
„Ég drekk orðið kombucha frá Kom-
bucha Iceland á hverjum degi. Þá fæ
ég mér alltaf hálft glas eftir kvöld-
mat, sem er iðulega frekar stór hjá
mér, svona til að koma meltingunni
af stað. Það gerist líka alveg að ég
hoppi yfir í Krónuna að ná mér í
flösku bara til að þamba sem svala-
drykk. Uppáhaldsbrögðin mín eru
jarðarberja kombucha og svo mel-
ónu- og myntubragð. Þessi brögð eru
algert nammi og frískandi, svona
eins og að fá sér tyggjó. Svo smakk-
aði ég nýja hátíðabragðið frá Kom-
bucha Iceland, sem heitir Spicy Chai
og maður lifandi hvað þetta er gott.
Ég kaupi oftast hálfslítersflöskurnar
frá Kombucha Iceland með slengi-
tappa. Drykkurinn helst ferskur og
gosaður allan daginn. Svo eru flösk-
urnar alger snilld til að nota aftur, en
ég hef verið að leika mér að búa til
gerjað gos heima. Þessar flöskur eru
fullkomnar í það.“
Kombucha var næsta æði
Jón segir kombucha frá Kombucha
Iceland passa fullkomlega inn í sinn
lífsstíl, bæði hvað varðar lifnaðar-
hætti og hugsjónir. „Ég glímdi við
fíkn á tímabili og eftir að ég varð
edrú fyrir fjórum árum fór ég að sjá
hlutina í nýju ljósi, hvernig hlutirnir
verða til og hvernig þeir eru fram-
leiddir. Ég byrjaði á að finna fyrir
megnri andúð á kjötiðnaðinum og
gerðist grænmetisæta í maí árið
2018. Í október sama ár gekk ég alla
leið inn í vegan lífsstílinn því ég átt-
aði mig á því að mjólkuriðnaðurinn
er alveg eins og kjötiðnaðurinn. Ég
lagði einfaldlega frá mér pizzusneið-
ina og tók hana ekki upp aftur. Kom-
bucha ásamt mörgum öðrum hlutum
í lífi mínu hjálpar mér að halda mér
edrú. Þegar maður verður edrú þá er
höfuðið alltaf að leita að næsta æði
til að grípa fíknihegðunina. Og ég
get með sanni sagt að kombucha frá
Kynntist „boochinu“ á tónleikaferðalagi
Jón Már Ásbjörnsson er allt í senn söngvari þungarokkssveitarinnar Une Misère,
útvarpsmaður á X-inu 977 og einlægur aðdáandi kombucha frá Kombucha Iceland.
Hjálpar til við sviðsskrekkinn
Jón segir einnig að kombucha gefi
sér haldreipi þegar hann kemur fram
með hljómsveitinni. „Ég fæ enn þá
sviðsskrekk fyrir tónleika og maginn
fer í algeran hnút af stressi. Þá finnst
mér nauðsynlegt að geta fengið mér
kombucha til að róa meltinguna og
taugarnar í leiðinni.“
„Nú er ég bæði edrú og vegan og
kombucha frá Kombucha Iceland
helst hönd í hönd við þessi tvö atriði
í lífi mínu. Svo skemmir ekki fyrir
hvað þau Ragna og Manuel eru gott
fólk. Þetta er alveg strangheiðarleg,
íslensk framleiðsla sem mér finnst
ótrúlega flott og það passar vel við
mín gildi, að versla í heimabyggð og
við litla manninn. Þetta er líka svo
nett fyrirtæki hjá þeim Manuel og
Rögnu. Kombucha Iceland er lítið fjöl-
skyldufyrirtæki og þau eru að fram-
leiða algera eðalvöru. Svo eru þau
líka bara svo næs. Maður fær bara
jákvæða og góða strauma frá þessu
fólki.“ n
Jón Már Ásgeirs-
son er söngvari í
þungarokkshljóm-
sveitinni Une
Misère og útvarps-
maður á X-inu.
Hann hefur verið
forfallinn aðdáandi
kombucha frá
Kombucha Iceland
í áraraðir.
MYND/THORBJORN
EINAR
SPICY CHAI
KOMBUCHA
Spicy Chai er glæ-
nýtt hátíðabragð
f rá Kombucha
Iceland. Kanill,
negull , svar tur
pipar og anís
kveikja undir jóla-
sjarmanum.
Kombucha Iceland er pottþétt eitt af
því sem greip mig. Það hjálpaði mér
í alvöru að læra að meta þetta nýja
bragð og þegar þú finnur að eitthvað
gerir þér gott þá er um að gera að
halda því áfram.
Ég fann nefnilega strax mun á mér
meltingarlega séð þegar ég byrjaði
að drekka kombucha frá Kombucha
Iceland. Ég get ekki sagt að ég hafi
áður þjáðst af neinum meltingar-
vandamálum til að tala um. Ég var
þungur á mér eftir máltíðir eins og
flestir og fann þessi dæmigerðu ein-
kenni þegar maður borðar þungan
mat. En þegar ég byrjaði að drekka
kombucha frá Kombucha Iceland þá
fann ég að það smellpassaði eitt-
hvað púsl sem hafði vantað. Það varð
alvöru breyting á meltingunni. Og ég
finn það líka núna að ef ég hætti að
drekka kombucha í einhvern tíma og
smakka svo aftur, þá finn ég strax
muninn. Ég verð strax léttari á mér
og fúnkera einfaldlega á þægilegri
máta.“
Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í
Kombucha Iceland-fjölskyldunni
Krónan| Melabúðin| Fjarðarkaup| Heilsu-
húsið| Matarbúðin Nándin| Brauð og co. og
nú nýlega fáanlegt í Heimkaup.
Einnig fæst Kombucha Iceland í
BioBorgara| Kaffihúsi Vesturbæjar| Le Kock|
Kaffi Laugalæk| Mr.Joy| Mamá| Te og Kaffi|
Systrasamlaginu og á fleiri stöðum.
Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi:
Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi|
Fisk kompaní á Akureyri| Hús handanna á
Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi.
MYND/SUNNA BEN