Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 41
KYNNING 41DV 18. SEPTEMBER 2020 K ombucha er gerjaður te-drykkur sem kemur líklega upphaflega frá Asíu til forna. Gerjunin á sér stað með hjálp svo- kallaðs „scoby“ - „Symbiotic Colony of Bacteria and Yeast) og úr verður sætsúr gosdrykkur með heillandi eftirbragði. „Kombucha er ekki eitt- hvað sem fólk verður ástfangið af við fyrsta sopa heldur þarf aðeins að venjast bragðinu. Ég kynntist „boochinu“ fyrst fyrir þó nokkrum árum síðan þegar einhver í kringum mig var að drekka það. Ég man bara að mér fannst lyktin af þessu rosa- lega erfið. Það var svo ekki fyrr en í byrjun þessa árs þegar ég var á tón- leikaferðalagi með Une Misère um Evrópu, sem ég kynntist kombucha aftur. Þá var einhver söngvari í ann- arri hljómsveit í ferðalaginu sem var alltaf með kombucha á sér og mér fannst það eitthvað svo tilkomu- mikið. Um leið og við lentum í Kefla- vík fór ég út í næstu matvörubúð og keypti mér flösku frá Kombucha Iceland og hefur þessi drykkur fylgt mér síðan,“ segir Jón. Algert sælgæti „Ég drekk orðið kombucha frá Kom- bucha Iceland á hverjum degi. Þá fæ ég mér alltaf hálft glas eftir kvöld- mat, sem er iðulega frekar stór hjá mér, svona til að koma meltingunni af stað. Það gerist líka alveg að ég hoppi yfir í Krónuna að ná mér í flösku bara til að þamba sem svala- drykk. Uppáhaldsbrögðin mín eru jarðarberja kombucha og svo mel- ónu- og myntubragð. Þessi brögð eru algert nammi og frískandi, svona eins og að fá sér tyggjó. Svo smakk- aði ég nýja hátíðabragðið frá Kom- bucha Iceland, sem heitir Spicy Chai og maður lifandi hvað þetta er gott. Ég kaupi oftast hálfslítersflöskurnar frá Kombucha Iceland með slengi- tappa. Drykkurinn helst ferskur og gosaður allan daginn. Svo eru flösk- urnar alger snilld til að nota aftur, en ég hef verið að leika mér að búa til gerjað gos heima. Þessar flöskur eru fullkomnar í það.“ Kombucha var næsta æði Jón segir kombucha frá Kombucha Iceland passa fullkomlega inn í sinn lífsstíl, bæði hvað varðar lifnaðar- hætti og hugsjónir. „Ég glímdi við fíkn á tímabili og eftir að ég varð edrú fyrir fjórum árum fór ég að sjá hlutina í nýju ljósi, hvernig hlutirnir verða til og hvernig þeir eru fram- leiddir. Ég byrjaði á að finna fyrir megnri andúð á kjötiðnaðinum og gerðist grænmetisæta í maí árið 2018. Í október sama ár gekk ég alla leið inn í vegan lífsstílinn því ég átt- aði mig á því að mjólkuriðnaðurinn er alveg eins og kjötiðnaðurinn. Ég lagði einfaldlega frá mér pizzusneið- ina og tók hana ekki upp aftur. Kom- bucha ásamt mörgum öðrum hlutum í lífi mínu hjálpar mér að halda mér edrú. Þegar maður verður edrú þá er höfuðið alltaf að leita að næsta æði til að grípa fíknihegðunina. Og ég get með sanni sagt að kombucha frá Kynntist „boochinu“ á tónleikaferðalagi Jón Már Ásbjörnsson er allt í senn söngvari þungarokkssveitarinnar Une Misère, útvarpsmaður á X-inu 977 og einlægur aðdáandi kombucha frá Kombucha Iceland. Hjálpar til við sviðsskrekkinn Jón segir einnig að kombucha gefi sér haldreipi þegar hann kemur fram með hljómsveitinni. „Ég fæ enn þá sviðsskrekk fyrir tónleika og maginn fer í algeran hnút af stressi. Þá finnst mér nauðsynlegt að geta fengið mér kombucha til að róa meltinguna og taugarnar í leiðinni.“ „Nú er ég bæði edrú og vegan og kombucha frá Kombucha Iceland helst hönd í hönd við þessi tvö atriði í lífi mínu. Svo skemmir ekki fyrir hvað þau Ragna og Manuel eru gott fólk. Þetta er alveg strangheiðarleg, íslensk framleiðsla sem mér finnst ótrúlega flott og það passar vel við mín gildi, að versla í heimabyggð og við litla manninn. Þetta er líka svo nett fyrirtæki hjá þeim Manuel og Rögnu. Kombucha Iceland er lítið fjöl- skyldufyrirtæki og þau eru að fram- leiða algera eðalvöru. Svo eru þau líka bara svo næs. Maður fær bara jákvæða og góða strauma frá þessu fólki.“ n Jón Már Ásgeirs- son er söngvari í þungarokkshljóm- sveitinni Une Misère og útvarps- maður á X-inu. Hann hefur verið forfallinn aðdáandi kombucha frá Kombucha Iceland í áraraðir. MYND/THORBJORN EINAR SPICY CHAI KOMBUCHA Spicy Chai er glæ- nýtt hátíðabragð f rá Kombucha Iceland. Kanill, negull , svar tur pipar og anís kveikja undir jóla- sjarmanum. Kombucha Iceland er pottþétt eitt af því sem greip mig. Það hjálpaði mér í alvöru að læra að meta þetta nýja bragð og þegar þú finnur að eitthvað gerir þér gott þá er um að gera að halda því áfram. Ég fann nefnilega strax mun á mér meltingarlega séð þegar ég byrjaði að drekka kombucha frá Kombucha Iceland. Ég get ekki sagt að ég hafi áður þjáðst af neinum meltingar- vandamálum til að tala um. Ég var þungur á mér eftir máltíðir eins og flestir og fann þessi dæmigerðu ein- kenni þegar maður borðar þungan mat. En þegar ég byrjaði að drekka kombucha frá Kombucha Iceland þá fann ég að það smellpassaði eitt- hvað púsl sem hafði vantað. Það varð alvöru breyting á meltingunni. Og ég finn það líka núna að ef ég hætti að drekka kombucha í einhvern tíma og smakka svo aftur, þá finn ég strax muninn. Ég verð strax léttari á mér og fúnkera einfaldlega á þægilegri máta.“ Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í Kombucha Iceland-fjölskyldunni Krónan| Melabúðin| Fjarðarkaup| Heilsu- húsið| Matarbúðin Nándin| Brauð og co. og nú nýlega fáanlegt í Heimkaup. Einnig fæst Kombucha Iceland í BioBorgara| Kaffihúsi Vesturbæjar| Le Kock| Kaffi Laugalæk| Mr.Joy| Mamá| Te og Kaffi| Systrasamlaginu og á fleiri stöðum. Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi: Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi| Fisk kompaní á Akureyri| Hús handanna á Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi. MYND/SUNNA BEN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.