Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Blaðsíða 42
42 MATUR 18. DESEMBER 2020 DV
Kitchen Aid
stykkið í
kökunni
Eva Laufey Kjaran, bökunardrottning og
eldhúsgyðja, gleður landsmenn vikulega
í sjónvarpsþætti sínum Jólaboð Evu þar
sem hún fer hamförum eins og henni
einni er lagið. Ekki gengur þó alltaf alveg
allt upp en það er fátt sem Eva reddar
ekki með breiðu brosi.
Eva Laufey
heilsar lands-
mönnum bæði
á Bylgjunni
alla laugar-
dagsmorgna
og í Íslandi í
dag á kvöldin.
MYNDIR/
AÐSENDAR
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
E va Laufey er alltaf ákaflega lekker til fara og elskar fallega kjóla.
Áhorfendur hafa ef til vill
tekið eftir að hún er sjaldnast
með svuntu. „Ég á mjög marg
ar fallegar svuntur. Gleymi
þeim yfirleitt og átta mig á
því þegar ég er búin að sulla
á mig að það hefði nú verið
betra að nota svuntuna. Mark
mið fyrir 2021, fara oftar í
svuntu,“ segir hún hlæjandi.
Eva er með sérlegt flauels
blæti sem er hentugt því oft er
nokkuð gott að ná blettum úr
slíku efni. „Ég er rosa mikil
flauelskona, já, það er hægt að
vera flauelskona. Sparilegir
og hátíðlegir kjólar, klassískt
sem klikkar ekki. Ég á nokkra
sem ég held mikið upp á og
nota nær eingöngu um jól.“
Sokkabuxur á
síðustu stundu
Eva er mikil kjólakona og fer
sjaldnast í buxur nema þegar
hún þeysist um Akranesið á
hlaupatúrum sínum. „Ég er
algjör sökker fyrir fallegum
kjólum og er yfirleitt í kjól,
bundnir fallegir kjólar eru í
uppáhaldi og kjólar sem ég
get klætt upp og niður. Kven
leg og falleg snið.
Ég held mikið upp á And
reu og kjólarnir frá henni
hafa fylgt mér í mörg ár, þeir
eru einmitt dæmi um kjóla
sem hægt er að klæða upp og
niður. Ég á nokkra sem ég hef
notað í mörg, mörg ár og það
sér ekki á þeim. Það er líka
einstaklega skemmtilegt að
kaupa íslenska hönnun, svo
mikið af flottum hönnuðum
hér á Íslandi.“
Þrátt fyrir óaðfinnanlegt
útlit segir Eva að það gangi
oft á ýmsu korter í boð. „Yfir
leitt er ég að tosa upp sokka
buxurnar og koma mér í kjól
þegar gestirnir mæta og þá
á ég iðulega eftir að mála
mig og laga hárið, þetta er
klassík í barnaafmælum til
dæmis. Mig langar að vera
hin fullkomna húsfreyja sem
er óaðfinnanleg en ég er það
alls ekki og verð það ekki…
en það má alltaf reyna. En
ég lærði það af góðri konu að
vera alltaf búin að hafa sig til
mjög snemma þann daginn
sem þú ert með jólaboð. Mála
og græja hár um morguninn
og þá þarf bara rétt aðeins að
dytta að þessu korter fyrir
boð. En þegar ég segi lærði þá
hef ég samt ekki fylgt þessu
nægilega vel eftir en ætla að
gera mitt besta fyrir þessi
jól.“
Brögð og brellur
Kanntu gott ráð til að losna
við bletti?
„Mig langar að segja já… en
ég spreyja bara blettaspreyi
og vona það besta. Stundum
virkar það og stundum ekki.
Merkilegt nokk þá get ég ver
ið settleg, en aftur, það hefur
gerst oftar en tvisvar sinnum
að ég sé búin að klína í mig
rjóma, sósu eða bara hverju
sem er í miðjum tökum og það
getur verið vesen. En það er
ekkert sem vatn og hárblásari
redda ekki á stuttum tíma. Þá
til þess að ná blettinum úr og
þurrka kjólinn/fatnaðinn mjög
hratt.“
Hún er spurð um verstu
eldhúsmistökin. „Það tengist
bakstri, ég var að baka fyrir
kökubókina mína heil ósköp
af kökum og var orðin pínu
þreytt í bakstrinum greini
lega, á milli þess sem ég bak
aði í bókina var ég að baka
fyrir fermingu hjá litlum
frænda og ég var alsæl með
kökurnar. Í miðri veislunni
kemur frænka mín með Kitch
en Aid stykki úr hrærivélinni
minni og spurði hvort þetta
hefði átt að fylgja kökunni?
Ég þóttist fyrst um sinn ekk
ert kannast við málið en þegar
heim var komið vantaði sem
sagt bæði Kitchen Aid merkið
og festingu sem er fremst á
hrærivélum. Skemmtilegur
fjölskylduleikur svona eftir á,
gæti komið í stað þess að finna
möndluna ef þú spyrð mig.“
Annars á Eva sér mjög
traust eldhúsráð sem reddar