Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Qupperneq 42
42 MATUR 18. DESEMBER 2020 DV Kitchen Aid stykkið í kökunni Eva Laufey Kjaran, bökunardrottning og eldhúsgyðja, gleður landsmenn vikulega í sjónvarpsþætti sínum Jólaboð Evu þar sem hún fer hamförum eins og henni einni er lagið. Ekki gengur þó alltaf alveg allt upp en það er fátt sem Eva reddar ekki með breiðu brosi. Eva Laufey heilsar lands- mönnum bæði á Bylgjunni alla laugar- dagsmorgna og í Íslandi í dag á kvöldin. MYNDIR/ AÐSENDAR Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is E va Laufey er alltaf ákaflega lekker til fara og elskar fallega kjóla. Áhorfendur hafa ef til vill tekið eftir að hún er sjaldnast með svuntu. „Ég á mjög marg­ ar fallegar svuntur. Gleymi þeim yfirleitt og átta mig á því þegar ég er búin að sulla á mig að það hefði nú verið betra að nota svuntuna. Mark­ mið fyrir 2021, fara oftar í svuntu,“ segir hún hlæjandi. Eva er með sérlegt flauels­ blæti sem er hentugt því oft er nokkuð gott að ná blettum úr slíku efni. „Ég er rosa mikil flauelskona, já, það er hægt að vera flauelskona. Sparilegir og hátíðlegir kjólar, klassískt sem klikkar ekki. Ég á nokkra sem ég held mikið upp á og nota nær eingöngu um jól.“ Sokkabuxur á síðustu stundu Eva er mikil kjólakona og fer sjaldnast í buxur nema þegar hún þeysist um Akranesið á hlaupatúrum sínum. „Ég er algjör sökker fyrir fallegum kjólum og er yfirleitt í kjól, bundnir fallegir kjólar eru í uppáhaldi og kjólar sem ég get klætt upp og niður. Kven­ leg og falleg snið. Ég held mikið upp á And­ reu og kjólarnir frá henni hafa fylgt mér í mörg ár, þeir eru einmitt dæmi um kjóla sem hægt er að klæða upp og niður. Ég á nokkra sem ég hef notað í mörg, mörg ár og það sér ekki á þeim. Það er líka einstaklega skemmtilegt að kaupa íslenska hönnun, svo mikið af flottum hönnuðum hér á Íslandi.“ Þrátt fyrir óaðfinnanlegt útlit segir Eva að það gangi oft á ýmsu korter í boð. „Yfir­ leitt er ég að tosa upp sokka­ buxurnar og koma mér í kjól þegar gestirnir mæta og þá á ég iðulega eftir að mála mig og laga hárið, þetta er klassík í barnaafmælum til dæmis. Mig langar að vera hin fullkomna húsfreyja sem er óaðfinnanleg en ég er það alls ekki og verð það ekki… en það má alltaf reyna. En ég lærði það af góðri konu að vera alltaf búin að hafa sig til mjög snemma þann daginn sem þú ert með jólaboð. Mála og græja hár um morguninn og þá þarf bara rétt aðeins að dytta að þessu korter fyrir boð. En þegar ég segi lærði þá hef ég samt ekki fylgt þessu nægilega vel eftir en ætla að gera mitt besta fyrir þessi jól.“ Brögð og brellur Kanntu gott ráð til að losna við bletti? „Mig langar að segja já… en ég spreyja bara blettaspreyi og vona það besta. Stundum virkar það og stundum ekki. Merkilegt nokk þá get ég ver­ ið settleg, en aftur, það hefur gerst oftar en tvisvar sinnum að ég sé búin að klína í mig rjóma, sósu eða bara hverju sem er í miðjum tökum og það getur verið vesen. En það er ekkert sem vatn og hárblásari redda ekki á stuttum tíma. Þá til þess að ná blettinum úr og þurrka kjólinn/fatnaðinn mjög hratt.“ Hún er spurð um verstu eldhúsmistökin. „Það tengist bakstri, ég var að baka fyrir kökubókina mína heil ósköp af kökum og var orðin pínu þreytt í bakstrinum greini­ lega, á milli þess sem ég bak­ aði í bókina var ég að baka fyrir fermingu hjá litlum frænda og ég var alsæl með kökurnar. Í miðri veislunni kemur frænka mín með Kitch­ en Aid stykki úr hrærivélinni minni og spurði hvort þetta hefði átt að fylgja kökunni? Ég þóttist fyrst um sinn ekk­ ert kannast við málið en þegar heim var komið vantaði sem sagt bæði Kitchen Aid merkið og festingu sem er fremst á hrærivélum. Skemmtilegur fjölskylduleikur svona eftir á, gæti komið í stað þess að finna möndluna ef þú spyrð mig.“ Annars á Eva sér mjög traust eldhúsráð sem reddar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.