Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Page 50
Þ ann 1. nóvember á hverju ári tilkynnir Mariah Carey á sam-
félagsmiðlum að „tíminn sé
kominn“.
Það fer ekki á milli mála að
hún er drottning jólanna, enda
höfundur vinsælasta jólalags
allra tíma. Hún heldur einnig
á hverju ári tryllta jólatón-
leika, nema í ár, þá færðust
tónleikarnir á streymisveit-
una Apple Music. Íslendingar
með aðgang að Netflix geta
einnig horft á sérstakan jóla-
þátt frá henni síðan 2015. Jól-
in eru svo sannarlega hennar
tími.
Sagan á bak við lagið
Fyrir 26 árum var Mariah
Carey að skríða upp á stjörnu-
himininn. Hún hafði gefið út
þrjár plötur og átta smáskífur
sem höfðu farið í efsta sæti á
vinsældalistum í Bandaríkj-
unum. Þegar útgáfufyrirtæki
hennar stakk upp á því að hún
gæfi út jólaplötu var hún efins
til að byrja með.
„Mér fannst eins og fólk
gerði þetta venjulega seinna
á ferli sínum, að jólaplata
merkti í raun endalok [lista-
mannaferils],“ sagði hún í við-
tali við Complex í fyrra.
En þrátt fyrir efasemdirnar
ákvað hún að láta tækifærið
ekki renna úr greipum sér.
Útgáfufyrirtækið vildi að hún
myndi syngja ábreiður af vin-
sælum jólalögum, en Mariah
sagðist ætla að semja ný jóla-
lög ásamt meðhöfundi sínum,
Walter Afanisieff.
Innblásturinn að plötunni
var erfið æska Mariuh. Í ævi-
sögu sinni, The Meaning of
Mariah Carey, opnar hún sig
um heimilisofbeldi sem hún
upplifði. Jólin voru oft erfiður
tími og Mariah vildi „semja
lög sem myndu gera mig
hamingjusama og láta mér
líða eins og ég væri elskuð og
áhyggjulaus á jólunum“, sagði
hún í bókinni.
„Þú“ ekki manneskja
heldur draumur
Það tók fimmtán mínútur að
semja All I Want For Christ-
mas is You.
Mariah var á þessum tíma
gift framkvæmdarstjóra
Sony, Tommy Mottola. Hún
var að skreyta heimili þeirra
þegar hún samdi lagið. Með
því að gera það taldi hún sig
geta fangað kjarnann í því
sem hún var að syngja um.
Í ævisögu sinni, The Mean-
ing of Mariah Carey, opnar
söngkonan sig um hjónaband-
ið og hversu óhamingjusöm
hún var á þessum tíma. Þessi
„þú“ sem hún syngur um í All
I Want For Christmas is You
er ekki Tommy Mattola, held-
ur er það draumur um annað
líf og að flýja óhamingjusamt
hjónaband.
Í bókinni lýsir Mariah
heimili þeirra sem fang-
elsi. Hún var vöktuð öllum
stundum og mátti ekki yfir-
gefa heimili þeirra án leyfis.
Sagan á bak við vin-
sælasta jólalag í heimi
Enn á ný trónir jólalagið All I Want For Christmas Is You á toppi vin-
sældalista um allan heim. Stórsöngkonan Mariah Carey gaf það út
árið 1994 en sagan á bak við lagið er mun sorglegri en þig grunar.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Mariah og Tommy skildu árið
1998.
Love, Actually
Það tók tíma fyrir lagið að
verða jafn vinsælt og það er í
dag. Þegar platan kom út var
hún önnur mest selda jóla-
platan í Bandaríkjunum sama
ár, en lagið All I Want For
Christmas Is You naut engrar
sérstakrar velgengni. Aðal-
lega vegna þess að lagið var
ekki gefið út sem smáskífa,
og á þessum tíma komust lög
aðeins á vinsældalista ef þau
voru gefin út sem smáskífur.
Það tók heilan áratug fyrir
lagið að komast í topp 30 á
Billboard-listanum.
Lagið komst aftur í sviðs-
ljósið árið 2003, þegar það
var notað í jólamyndinni Love,
Actually.
„Það skemmtilega við þetta
er að myndin kom út áður en
lagið varð jafn stórt og það
er í dag,“ sagði Mariah við
Billboard í fyrra.
„Ég er mjög þakklát fyrir
að lagið hafi verið í myndinni
því ég tel það hafa hjálpað við
að koma laginu til enn stærri
hóps.“
Að sögn Walters gefur Mari-
ah sjaldan leyfi til að nota lög-
in sín í kvikmyndum, en hún
var hrifin af handritinu og
leikurunum, svo hún sagði já.
En eins og við vitum þá tek-
ur það tíma fyrir klassík að
verða til. Í dag er Love, Actu-
ally klassísk jólamynd, en
það tók nokkur ár. Í gegnum
árin hafa lagið og kvikmyndin
hjálpað hvort öðru að spila
lykilhlutverk í jólahefðum
margra.
2020 hugsanlega
stærsta árið til þessa
Það eru til nokkrar útgáfur af
laginu. Árið 2010 gaf Mariah
út nýja útgáfu af laginu sem
var kallað „Extra Festive“.
Ári seinna söng hún lagið
með Justin Bieber fyrir plötu
hans, Under the Mistletoe.
Fjöldi stjarna hefur sungið
ábreiður af laginu, eins og
Shania Twain, Ariana Grande,
Michael Bublé, John Mayer og
Miley Cyrus.
Lagið hefur aldrei verið
jafn vinsælt og núna. Sam-
kvæmt The New York Times
var laginu streymt um 12,6
milljón sinnum í nóvember og
desember árið 2014. Árið 2016
hækkaði sú tala í 61 milljón og
í fyrra var laginu streymt 185
milljón sinnum. Það bendir allt
til þess að sú tala muni hækka
í ár. n
Mariah Carey
hefur haldið
jólatónleika
síðan 2014.
MYND/GETTY
MYND/SKJÁSKOT-YOUTUBE
JÓLIN
HENNAR
TÍMI
Mariah Carey
hefur lært að
markaðssetja
sig í kringum
jólin.
JUSTIN
BIEBER
Mariah Carey
og Jus t in
Bieber sungu
lagið saman,
en það náði
ekk i sömu
v i n s æ l du m
og uppruna-
lega útgáfan.
26 ÁR SÍÐAN
Það tók áratugi fyrir lagið að
verða jafn stórt og það er í dag.
50 FÓKUS
MYND/GETTY
18. DESEMBER 2020 DV