Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2020, Síða 50
Þ ann 1. nóvember á hverju ári tilkynnir Mariah Carey á sam- félagsmiðlum að „tíminn sé kominn“. Það fer ekki á milli mála að hún er drottning jólanna, enda höfundur vinsælasta jólalags allra tíma. Hún heldur einnig á hverju ári tryllta jólatón- leika, nema í ár, þá færðust tónleikarnir á streymisveit- una Apple Music. Íslendingar með aðgang að Netflix geta einnig horft á sérstakan jóla- þátt frá henni síðan 2015. Jól- in eru svo sannarlega hennar tími. Sagan á bak við lagið Fyrir 26 árum var Mariah Carey að skríða upp á stjörnu- himininn. Hún hafði gefið út þrjár plötur og átta smáskífur sem höfðu farið í efsta sæti á vinsældalistum í Bandaríkj- unum. Þegar útgáfufyrirtæki hennar stakk upp á því að hún gæfi út jólaplötu var hún efins til að byrja með. „Mér fannst eins og fólk gerði þetta venjulega seinna á ferli sínum, að jólaplata merkti í raun endalok [lista- mannaferils],“ sagði hún í við- tali við Complex í fyrra. En þrátt fyrir efasemdirnar ákvað hún að láta tækifærið ekki renna úr greipum sér. Útgáfufyrirtækið vildi að hún myndi syngja ábreiður af vin- sælum jólalögum, en Mariah sagðist ætla að semja ný jóla- lög ásamt meðhöfundi sínum, Walter Afanisieff. Innblásturinn að plötunni var erfið æska Mariuh. Í ævi- sögu sinni, The Meaning of Mariah Carey, opnar hún sig um heimilisofbeldi sem hún upplifði. Jólin voru oft erfiður tími og Mariah vildi „semja lög sem myndu gera mig hamingjusama og láta mér líða eins og ég væri elskuð og áhyggjulaus á jólunum“, sagði hún í bókinni. „Þú“ ekki manneskja heldur draumur Það tók fimmtán mínútur að semja All I Want For Christ- mas is You. Mariah var á þessum tíma gift framkvæmdarstjóra Sony, Tommy Mottola. Hún var að skreyta heimili þeirra þegar hún samdi lagið. Með því að gera það taldi hún sig geta fangað kjarnann í því sem hún var að syngja um. Í ævisögu sinni, The Mean- ing of Mariah Carey, opnar söngkonan sig um hjónaband- ið og hversu óhamingjusöm hún var á þessum tíma. Þessi „þú“ sem hún syngur um í All I Want For Christmas is You er ekki Tommy Mattola, held- ur er það draumur um annað líf og að flýja óhamingjusamt hjónaband. Í bókinni lýsir Mariah heimili þeirra sem fang- elsi. Hún var vöktuð öllum stundum og mátti ekki yfir- gefa heimili þeirra án leyfis. Sagan á bak við vin- sælasta jólalag í heimi Enn á ný trónir jólalagið All I Want For Christmas Is You á toppi vin- sældalista um allan heim. Stórsöngkonan Mariah Carey gaf það út árið 1994 en sagan á bak við lagið er mun sorglegri en þig grunar. Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Mariah og Tommy skildu árið 1998. Love, Actually Það tók tíma fyrir lagið að verða jafn vinsælt og það er í dag. Þegar platan kom út var hún önnur mest selda jóla- platan í Bandaríkjunum sama ár, en lagið All I Want For Christmas Is You naut engrar sérstakrar velgengni. Aðal- lega vegna þess að lagið var ekki gefið út sem smáskífa, og á þessum tíma komust lög aðeins á vinsældalista ef þau voru gefin út sem smáskífur. Það tók heilan áratug fyrir lagið að komast í topp 30 á Billboard-listanum. Lagið komst aftur í sviðs- ljósið árið 2003, þegar það var notað í jólamyndinni Love, Actually. „Það skemmtilega við þetta er að myndin kom út áður en lagið varð jafn stórt og það er í dag,“ sagði Mariah við Billboard í fyrra. „Ég er mjög þakklát fyrir að lagið hafi verið í myndinni því ég tel það hafa hjálpað við að koma laginu til enn stærri hóps.“ Að sögn Walters gefur Mari- ah sjaldan leyfi til að nota lög- in sín í kvikmyndum, en hún var hrifin af handritinu og leikurunum, svo hún sagði já. En eins og við vitum þá tek- ur það tíma fyrir klassík að verða til. Í dag er Love, Actu- ally klassísk jólamynd, en það tók nokkur ár. Í gegnum árin hafa lagið og kvikmyndin hjálpað hvort öðru að spila lykilhlutverk í jólahefðum margra. 2020 hugsanlega stærsta árið til þessa Það eru til nokkrar útgáfur af laginu. Árið 2010 gaf Mariah út nýja útgáfu af laginu sem var kallað „Extra Festive“. Ári seinna söng hún lagið með Justin Bieber fyrir plötu hans, Under the Mistletoe. Fjöldi stjarna hefur sungið ábreiður af laginu, eins og Shania Twain, Ariana Grande, Michael Bublé, John Mayer og Miley Cyrus. Lagið hefur aldrei verið jafn vinsælt og núna. Sam- kvæmt The New York Times var laginu streymt um 12,6 milljón sinnum í nóvember og desember árið 2014. Árið 2016 hækkaði sú tala í 61 milljón og í fyrra var laginu streymt 185 milljón sinnum. Það bendir allt til þess að sú tala muni hækka í ár. n Mariah Carey hefur haldið jólatónleika síðan 2014. MYND/GETTY MYND/SKJÁSKOT-YOUTUBE JÓLIN HENNAR TÍMI Mariah Carey hefur lært að markaðssetja sig í kringum jólin. JUSTIN BIEBER Mariah Carey og Jus t in Bieber sungu lagið saman, en það náði ekk i sömu v i n s æ l du m og uppruna- lega útgáfan. 26 ÁR SÍÐAN Það tók áratugi fyrir lagið að verða jafn stórt og það er í dag. 50 FÓKUS MYND/GETTY 18. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.