Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 8

Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 8
Hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Reykjanesbæ voru með örlítið breyttu sniði en undanfarin ár en þó var haldið í nokkrar gamlar hefðir. Stærsta breyt- ingin var sú að ekki var vegleg dagskrá í skrúðgarðinum í Keflavík en þar var þó fánahylling, flutt ræða dagsins og fjallkonan fór með ljóð. Hátíðarguðsþjónusta var í Kefla- víkurkirkju undir stjórn sr. Fritz Jörgenssonar og skátar frá Heiðar- búum og lúðrasveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar gengu inn í skrúð- garðinn undir hljómum sveitarinnar. Inga María Ingvarsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri, dró stærsta fána landsins að húni með hjálp skátanna. Karlakór Keflavíkur söng þjóðsöng- inn og Sveinbjörg Ólafsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, flutti þjóðhátíðar- ræðunar. Salka Lind Reinhardsdóttir, nýstúdent og dúx frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, fór með ljóð. Jóhann F. Friðriksson, forseti bæjarstjórnar, setti dagskránna og Kjartan Már Kjartansson stýrði samkomunni sem var streymt á Facebook-síðu Víkur- frétta og Reykjanesbæjar. Síðan voru viðburðir hjá íþrótta- félögum og kaffisala í Keflavík og Njarðvík. Söfn og sundmiðstöð voru opin og sundlaugarpartý fyrir ungmennin. Þá var pylsupartí og skemmtiatriði í Fjörheimum þar sem Ingó veðurguð tók lagið. Veðrið lék við þjóðhátíðargesti sem voru nokkrir í skrúðgarðinum. Ekki var boðið upp á skemmtidagskrá þar vegna veirutakmarkana. Hátíðarhöldum 17. júní streymt til bæjarbúa Hjúkrunarfræðingur flutti hátíðarræðu og dúx frá FS var fjallkona. Jóhann F. Friðriksson, forseti bæjarstjórnar, setti samkomuna. Skátar frá Heiðabúum gengu fylktu liði í skrúðgarðinn með lúðrasveit tónlistarskólans. Páll Ketilsson pket@vf.is 8 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.