Víkurfréttir - 18.06.2020, Blaðsíða 16
Rólegt í höfnum
og veðurguðirnir í óstuði
Það er búið að vera nokkuð rólegt í höfnunum á Suðurnesjum í júní og ekki
hefur þessi blessaða veðrátta hjálpað til. Búið að vera frekar leiðinlega hvasst
og það kemur sér illa fyrir smábátana sem eru svo til þeir einu sem eru að
róa héðan um þessar mundir.
Í síðasta pistli var greint frá því að
Steinunn HF væri eini línubátur af
minni gerðinni sem væri að róa en
það er hann ekki lengur því báturinn
er komin austur til Stöðarfjarðar.
Veiðin þar aftur á móti er búinn
að vera mjög léleg og sem dæmi þá
hefur Steinunn HF aðeins landað
um tólf tonnum í fimm róðrum og
mest aðeins um 3,5 tonn. Aflinn
hjá hinum Suðurnesjabátunum er
heldur ekkert búinn að vera neitt
sérstakur þarna fyrir austan. Mar-
grét GK byrjaði ágætlega, komst
mest í fjórtán tonn í einni löndun
en hefur í síðustu þremur róðrum
aðeins landað tólf tonnum.
Af stærri línubátunum eru það
bara bátarnir frá Vísi í Grindavík
sem róa og hefur aflinn hjá þeim
verið frekar lítill. Jóhanna Gísladóttir
GK með 98 tonn í tveimur róðrum.
Sighvatur GK 79 tonn í einum og
Fjölnir GK 74 tonn, líka í einum
róðri.
Aðalbjörg RE er eini dragnóta-
báturinn sem er að róa héðan og
hefur honum reyndar gengið nokkuð
vel. Er hann að róa á hefbundnu
dragnótamiðunum undir Hafnar-
bergi sem kallast Hafnarleir og hefur
landað 43 tonnum í sjö róðrum.
Aðalbjörg RE er helst að eltast við
kolann og hefur það gengið mjög vel
því af þessum afla þá eru 23 tonn af
sólkola sem báturinn hefur landað
en mjög lítið af þorski hefur slæðst
með í aflanum hjá bátnum. Ekki nóg
með að Aðalbjörg RE sé eini drag-
nótabáturinn sem er að róa héðan
heldur er hann líka sá eini sem er
á þessum miðum að veiða, oft eru
bátar frá Þorlákshöfn á þessum
slóðum en ekki núna og því situr
Aðalbjörg RE ein að þessum miðum.
Nesfisks-dragnótabátarnir hafa
verið að veiðum með suðurströnd-
inni og hafa þá landað í Þorlákshöfn.
Þeir fiska í sig og eru því úti í nokkra
daga þangað til þeir ná fullfermi.
Sigurfari GK hefur landað 76 tonn
í tveimur og þar af 43 tonn í einni
löndun. Siggi Bjarna GK 50 tonn
í tveimur róðrum, mest 33 tonn,
og Benni Sæm GK 61 tonn í einni
löndun.
Sem sé rólegheit og margir bátanna
orðnir stopp, komnir í slipp eða eru
að landa úti á landi.
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
SVEITARFÉLAGIÐ VOGAR
FORSETAKOSNINGAR
LAUGARDAGINN 27. JÚNÍ 2020
Kjörskrá liggur frammi almenning til sýnis, frá þriðjudeginum 16. júní
fram að kjördegi á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2.
Kosningarétt við forsetakjör eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarétt til Alþingis,
samkvæmt 1. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945,
sbr. 1. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga.
Kosið er í Stóru-Vogaskóla
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.
Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
16 // aFLaFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR