Víkurfréttir - 18.06.2020, Page 28
Íslendingar sóttu í klúbbana
Í Rockville var einnig bar eða
klúbbur sem naut mikilla vinsælda.
Íslendingar sóttu m.a. klúbbinn í
Rockville mjög stíft. Í Víkurfréttum
árið 1996 var greint frá því í nóv-
ember að Sýslumaðurinn á Kefla-
víkurflugvelli, sem var sérstakt lög-
regluembætti, hafi stöðvað stóran
hóp Íslendinga sem voru á leið á
skemmtun í klúbbi Varnarliðsins í
Rockville. Hluti hópsins var kominn
inn á klúbbinn og fóru lögreglu-
menn inn á staðinn og vísuðu fólk-
inu út. Nálægt eitthundrað manns
voru á gestalista og ætluðu á staðinn
en fengu ekki inngöngu.
Þorgeir Þorsteinsson, þáverandi
sýslumaður á Keflavíkurflugvelli,
sagði í samtali við Víkurféttir á
þeim tíma að þetta næði ekki nokk-
urri átt. Klúbbar varnarliðsins væru
fyrst og fremst fyrir varnarliðsmenn
og gesti þeirra og að það gengi ekki
að stórir hópar Íslendinga væru að
sækja varnarliðsklúbba. Helst áttu
lögregluyfirvöld erfitt með að hafna
Íslendingum inngöngu sem boðið
var í klúbbana í varnarstöðinni
í gegnum alþjóðleg félög eins og
Lions og Kiwanis en þessir klúbbar
voru starfandi á Keflavíkurflugvelli.
Þorgeir sagði fulla ástæðu til að
taka í taumana gagnvart Rockville-
klúbbunum en þar höfðu nokkrar
„íslenskar“ skemmtanir farið fram
þá um haustið. Jafnvel kom til greina
að loka alveg á heimsóknir Íslend-
inga í Rockville.
Veitingamenn fundu
fyrir Íslendingaveislum
Veitingamenn á Suðurnesjum fundu
mikið fyrir Íslendingaveislunum í
klúbbum kanans. Það væri erfitt að
keppa við klúbbana á Vellinum og
í Rockville en margfalt lægra vín-
og bjórverð var sögð ástæða þess
að Íslendingar sóttust eftir því að
komast í klúbbana.
Ári eftir að Sýslumaðurinn á Kefla-
víkurflugvelli vísaði Íslendingunum
út úr klúbbnum í Rockville var
stöðinni lokað og starfsemin flutt.
Þá varð Rockville að draugabæ um
nokkurt skeið eða þar til Byrgið gerði
samning við utanríkisráðuneytið um
afnot af húsakosti í Rockville fyrir
meðferðarstöð. Byrgið var með starf-
semi í Rockville í nokkur misseri eða
þar til í júní 2003 að þeim var gert að
yfirgefa staðinn. Byrgið flutti í upp-
sveitir Árnessýslu, Rockville varð
aftur draugabær og nokkrar bygg-
ingar urðu eldi að bráð. Byggingar
þar höfðu svo vart verið rifnar þegar
tilkynnt var um brottför Varnarliðs-
ins frá Íslandi.
VÍKURFRÉTTIR Í 40 ÁR
28 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.