Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.06.2020, Qupperneq 34

Víkurfréttir - 18.06.2020, Qupperneq 34
– Nafn: Unnar Steinn Bjarndal. – Árgangur: 1981. – Búseta: Bý í Reykjanesbæ ásamt börnum mínum, þeim Þórunni Fríðu (15) og Matthíasi Bjarndal (11). – Hverra manna ertu og hvar upp alinn? Foreldrar mínir eru þau Björn Bjarndal Jónsson, skógarverk- fræðingur, og Jóhanna Fríða Róbertsdóttir, markaðsfræðingur. Ég er upp alinn í Biskupstungum í Árnessýslu og bænum Ekenäs í Finnlandi. – Starf/nám: Ég er hæstaréttarlögmaður, við- skiptafræðingur og með meistara- próf í nýsköpun og lögfræði frá Edinborgarháskóla. Ég gegni starfi bæjarlögmanns Reykjanesbæjar og er lektor við Háskólann á Bifröst. – Hvað er í deiglunni? Það er í mörg horn að líta í skemmtulegu starfi hjá Reykja- nesbæ og ég geri ráð fyrir að sinna þeim verkefnum samkvæmt bestu getu eitthvað fram eftir sumri. Svo taka við ferðalög innanlands með fjölskyldunni. Hlakka til að njóta alls þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða. Mig langar líka til að rífa mig svolítið í gang eftir COVID-19-inniveru; hlaupa, ganga á fjöll og spila golf. – Hvernig nemandi varstu í grunnskóla? Ég held að ég hafi verið í prúðari kantinum. Stundaði námið vel og forðaðist vesen. – Hvernig voru framhaldsskóla- árin? Þau voru frábær. Ég stundaði námið vel, sér í lagi framan af, en svo áttu félagsmálin hug minn allan. Ég fékk svo aftur áhuga á náminu í tæka tíð. – Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Foreldrar mínir segja að ég hafi framan af ætlað mér að verða leigubílstjóri í New York. Í bíó- myndum væri alltaf sagt „Keep the change“ og þeir þyrftu því ekki að vera góðir í reikningi. Seinna ætlaði ég mér að verða læknir. Ég hefði orðið skelfilega lélegur læknir enda þoli ég hvorki að sjá eigið blóð né annarra. – Hver var fyrsti bíllinn þinn? Það mun hafa verið Mitsubishi Lancer árg. 1991. Hann var með spoiler og undir hann fóru álfelgur af bestu gerð. Hefði orðið skelfilega lélegur læknir Unnar Steinn Bjarndal, bæjarlögmaður Reykjanesbæjar, var alinn upp í Biskupstungum Árnessýslu og Ekenäs í Finnlandi. Honum finnst eggið best spælt með öllum vinum sínum úr enskum morgunverði og hann getur verið langrækinn ... en ekki þrjóskur! N etspj@ ll 34 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.