Víkurfréttir - 18.06.2020, Side 56
Þjálfarateymi:
Þjálfari: Mikael Nikulásson.
Aðstoðarþjálfari/leikmaður: Marc McAusland.
Aðstoðarþjálfari: Ómar Freyr Rafnsson.
Styrktarþjálfari: Alexander Magnússon.
Markmannsþjálfari: Helgi Már Helgason.
Leikmannahópur:
Rúnar Gissurason (kom frá Reynir Sandgerði),
Hrannar Þorvaldsson (kom frá Fram), Arnar Helgi
Magnússon, Hlynur Magnússon (kom frá Aftureld-
ingu), Alexander Magnússon (kom frá Kórdrengjum),
Marc McAusland (frá Grindavík), Kári Daníel Alex-
anderson (á láni frá Val), Alex Bergmann (á láni frá
Fram), Jón Tómas Rúnarsson (kom frá Víði), Einar Örn
Andrésson (á láni frá Keflavík), Atli Fannar Hauksson
(á láni frá Fjölni), Alan Kehoe (kom frá Írlandi), Stefán
Birgir Jóhannesson, Ari Már Andrésson, Kenneth
Hogg, Sean De Silva (kom frá Haukum), Atli Freyr
Ottesen (kom frá Víði), Bergþór Ingi Smárason, Krist-
ján Ólafsson (á láni frá FH), Andri Gíslason og Theo-
dór Guðni Haraldsson (kom frá Reyni Sandgerði).
Fyrirliði og lykilleikmaður:
Marc McAusland.
Njarðvíkingar stefna á toppbaráttuna og að vinna
sig upp um deild en þeir féllu úr Inkasso-deildinni
á síðasta ári. Miklar breytingar hafa orðið á leik-
mannahópnum sem er samheldinn og með
mikla breidd. Eftir svekkjandi tap í Mjólkurbik-
arnum ætla Njarðvíkingar væntanlega að gera
betur á laugardaginn þegar þeir taka á móti
Völsungi frá Húsavík í fyrstu umferð, leikurinn
hefst kl. 14:00 á Rafholtsvellinum.
Markmið og væntingar
sumarsins:
Markmiðið er að reyna að spila
skemmtilegan fótbolta og vera í
toppbaráttu deildarinnar og auð-
vitað að reyna að komast upp í 1.
deild aftur.
Helstu styrkleikar liðs:
Samheldinn og góður hópur með
fína breidd sem ætti að geta skipt
verulega máli í sumar þar sem þétt
er leikið.
Helstu veikleikar liðs:
Fullt af hlutum má bæta sem við
erum að vinna í. Sjáum hvernig það
kemur út í sumar.
Njarðvík, meistaraflokkur karla:
Spila skemmtilegan
fótbolta og fara upp!
Það mun væntanlega
mæða mikið á Marc
McAusland í sumar sem
spilandi aðstoðarþjálfari,
fyrirliði og lykilleikmaður
Njarðvíkurliðsins.
Fimmtudagur 18. júní 2020 // 25. tbl. // 41. árg.
56 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRnESjum í 40 áR